Bruno Mars búinn að fylla í skarð Cardi B

Bruno Mars er búinn að vera á tónleikaferðalagi um heiminn …
Bruno Mars er búinn að vera á tónleikaferðalagi um heiminn síðan í mars 2017. AFP

Bruno Mars hefur ráðið fjögur atriði í tónleikaferðalag sitt um Bandaríkin í stað Cardi B. Rapparinn þurfti að hætta við tónleikaferðalagið með Mars vegna þess að hún gat ekki tekið dóttur sína með sér. Cardi B eignaðist sitt fyrsta barn, Kulture, 10. júlí síðastliðinn og ætlaði að taka hana með á tónleikaferðalagið í haust. Læknar ráðlögðu henni að gera það ekki svo hún hætti við að koma fram með Mars. 

Skipuleggjendur tónleikaferðalagsins sögðu að það myndi vera erfitt að fylla skarð Cardi B með svo stuttum fyrirvara. Mars og félagar létu ekki einn flytjanda duga heldur réðu þau fjögur atriði, Ciara, Ella Mai, Charlie Wilson og Boys II Men. 

Þau munu því koma til með að fylgja Bruno Mars um Bandaríkin í haust, en það er síðasti hluti 24K Magic World Tour. Mars hefur verið á ferðalagi um heiminn með tónleika sína síðan í lok mars 2017 og mun ljúka ferðalaginu á Hawaii 11. nóvember næstkomandi.

Hath the game changeth??? 🤔

A post shared by Bruno Mars (@brunomars) on Aug 14, 2018 at 3:00pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson