Jökull í Kaleo andlit herferðar World Wild Life

Jökull Júlíusson er andlit herferðar World Wild Life.
Jökull Júlíusson er andlit herferðar World Wild Life. Morgunblaðið/Golli

Jökull Júlíusson söngvari hljómsveitarinnar Kaleo er andlit nýrrar herferðar hjálparsamtakanna World Wild Life. Herferðin var sett af stað í síðustu viku þar sem þau halda áfram baráttu sinni fyrir varðveislu á viltu lífríki náttúrunnar. Lag Kaleo „Can't go on without you“ er notað í þremur nýjum myndböndum sem WWF setti í loftið sem hluti af herferðinni. 

Jökull segist vera stoltur af því að vinna með hjálparsamtökunum og að verkefni þeirra séu honum hjartfólgin. Á vef World Wild Life segir Jökull að uppáhalds dýrið sitt sé ísbjörn.

Með því að alast upp á Íslandi sem státar af einu stærsta ósnortna náttúrusvæði Evrópu trúi ég á varðveislu náttúrunnar og fegurð hennar. Umræða um þessi mál er nauðsynlegur partur af varðveislu jarðarinnar og eiga skilið stuðning frá öllum heimshornum,“ segir Jökull.  

WWF hefur í 50 ár verið í fararbroddi umhverfissinna með starfsemi í yfir 100 löndum og leggja um 5 milljónir manna samtökunum lið um allan heim. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson