Ariana Grande er ekki borin hvert sem hún fer

Ariana Grande er vinsæl söngkona.
Ariana Grande er vinsæl söngkona. AFP

Tónlistarkonan Ariana Grande segist ekki vera borin hvert sem hún fer. Grande fór á rúntinn með James Corden í gærkvöldi þar sem þau sungu nokkur lög hennar á meðan þau rúntuðu um Los Angeles. Rúnturinn, Carpool Kareoke, er innslag í þáttum James Corden The Late Late Show. 

Grande grínaðist með flökkusöguna að hún sé borin hvert sem hún fer. „Vissir þú að ég krefst þess að vera borin allt sem ég fer? Ég er þannig poppstjarna. Vildi bara láta ykkur öll vita. Ef þú sérð mig einhvers staðar, þá er það ekki af því að ég labbaði þangað sjálf. Ég lofa,“ sagði Grande.

Hún birti mynd af sér á Instagram þar sem skipuleggjandi tónleikaferðalagsins hennar hélt á henni. Hún hafði verið að taka upp tónlistarmyndband í támjóum skóm sem meiddu hana. Hann bauðst því til að halda á henni, því hún gat vart gengið eftir tökurnar. Þá fór sú flökkusaga af stað að hún láti bera sig allt sem hún fer. 

Líkt og í fyrri þáttum Corden slær hann á létta strengi með viðmælendum sínum. Þau fóru meðal annars á eitt kaffihús kaffihúsakeðjunnar Starbucks, þar sem Grande pantaði sér latté í stærðinni grande. Líkt og alvöruheimsborgarar vita þá eru stærðirnar á drykkjum Starbucks ekki kallaðar hinum hefðbundnu nöfnum lítill, miðstærð og stór, heldur tall, grande og venti.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson