Hlutirnir gengu ansi hratt fyrir sig í sambandi tónlistarkonunnar Ariana Grande og grínistans Pete Davidson. Þeir gengu þó hraðar fyrir sig en áður hefur verið greint frá en Davidson sagði í viðtali við GQ að hann hafi sagt við hana „ég skal giftast þér á morgun“ í fyrsta skipti sem þau hittust.
Það hafi þó verið brandari, en Grande hafi gengið lengra með grínið og um kvöldið sendi hann henni myndir af trúlofunarhringjum. Hún valdi nokkra úr sem henni leist best á.
Davidson sem er best þekktur fyrir að koma fram í þáttunum Saturday Night Live var ekki mjög þekktur áður en hann trúlofaðist söngkonunni. Nú elta papparazzi-ljósmyndarar þau hvert sem þau fara. Hann segir að það sé af því hún sé svo rosalega fræg.
Þau trúlofuðu sig í byrjun sumars eftir aðeins nokkurra vikna samband. Þau búa saman í íbúð í New York-borg í Bandaríkjunum sem Grande keypti. Davidson segir þó að búskapurinn sé ekki mjög fullorðins. „Við eigum sex grjónapúða, en við eigum enga gaffla. Fattarðu hvað ég meina? Við erum að læra að verða fullorðin saman og það er mjög gaman.“