Breski rapparinn Michael Omari, betur þekktur sem Stormzy, ætlar að greiða skólagjöld tveggja svartra nemenda í Cambridge-háskólanum í Bretlandi. Rapparinn greinir frá þessu á Instagram-síðu sinni. Í samstarfi við Cambridge-háskóla hefur hann stofnað The Stormzy Scholarship og mun greiða skólagjöld tveggja nemenda í haust og árið 2019. Skilyrðin til að hljóta styrkinn er að vera svartur og hafa fengið inngöngu í Cambridge.
Stormzy skrifar að hann hafi ráðist í þetta verkefni til þess að styðja við svarta nemendur, sem enn eru í miklum minnihluta í stærstu og bestu háskólum heimsins. Hann segist vera stoltur af þessu verkefni sínu og segist hlakka til að sjá svarta snillinga í Cambridge.
A post shared by Gang Signs & Prayer (@stormzyofficial) on Aug 16, 2018 at 2:18am PDT