Tónlistarkonan Ariana Grande stoppaði að syngja í miðju lagi á tónleikum sínum á laugardagskvöldið í Los Angeles. Ástæðan þykir nokkuð hlægileg, en hún heyrði í aðdáenda sínum kalla „Bíddu, byrjaðu aftur, ég var ekki byrjaður að taka upp.“ Hún stoppaði því og sagðist hlusta á aðdáendur sína og byrjaði aftur að syngja lagið.
Annar glöggur tónleikagestur, sem var svo sannarlega byrjaður að taka upp myndband, birti myndband af atvikinu á Twitter.
SOMEONE SAID “WAIT START AGAIN I WASNT RECORDING” AND SHE DID LMAOOOOOO pic.twitter.com/IEAhCM2YzX
— meliss (@majestcbitch) August 26, 2018