Þeir sem fylgjast með Kim Kardashian og Chrissy Teigen hafa eflaust velt fyrir sér nýjasta skrauti þeirra. Kardashian skartar hálsmeni sem lítur út fyrir að hafa verið grætt á háls hennar. Teigen sýndi í gær fjaðrir á bringu sinni sem virðast einnig vera ígræddar á hana. Queer Eye for the Straight Guy-stjarnan Tan France skartaði einnig svipuðu skrauti.
Margir hafa velt vöngum yfir þessari tísku, en bæði Teigen og Kardashian þakka A. Human fyrir skrautið. A. Human er listagjörningur á vegum almannatengilsins Simon Huck. A. Human notar nú samfélagsmiðla til að auglýsa opnun á listasýningu þar sem líkaminn er sýndur á einstakan hátt. Huck sagði í viðtali við Vogue að þau hafi viljað gera eitthvað sem hefur ekki verið gert áður.
A post shared by T A N . F R A N C E (@tanfrance) on Aug 27, 2018 at 6:31am PDT
Þau nota því ekki tískustaðla sem eiga við í nútímanum heldur skoða hvernig hægt er að breyta líkamanum á ómannlegan hátt, samanber fjaðrir Teigen og hálsmen Kardashian. Huck sagði einnig í viðtalinu að hann vilji hugsa um framtíðina sem útópíu en ekki dystópíu, eins og vinsælt er í kvikmyndaheiminum.