„Fólk óhrætt við að sækja fram“

„Leikárið hér endurspeglar þær áherslur og viðfangsefni sem eru listafólki …
„Leikárið hér endurspeglar þær áherslur og viðfangsefni sem eru listafólki sjálfstæðu leikhópanna hugleikin. Sú áhersla sem er á íslensk verk helst að einhverju leyti í hendur við áherslur Leiklistarráðs sem styrkir fremur íslenska frumsköpun á svið,“ segir Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Tjarnarbíós, og tekur fram að hjá valnefnd Tjarnarbíós vegi frum- og nýsköpun verkefna þungt. Aðrir þættir sem valnefndin horfi til séu fagmennska, erindi efnis við íslenska áhorfendur og hvort verið sé að vinna með nýjar vinnuaðferðir. mbl/Arnþór Birkisson

„Eins og alltaf er ég mjög spenntur fyrir komandi leikári. Á vorin tekur ávallt við spennandi púsluspil, því að skipuleggja leikár er eins og vera í tetris með púslum sem sífellt breytast. En eins og ég lærði í viðskiptafræðinni á sínum tíma þá snúast viðskipti ekki um tölur heldur fólk. Mannlegi þátturinn er óútreiknanlegi hlutinn í öllu skipulagi, enda er fólk ekki excel-skjöl,“ segir Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri Tjarnarbíós í viðtali við Morgunblaðið í dag þar sem hann kynnir nýtt leikár. 

„Líkt og síðustu ár eiga flestar sýningar leikársins það sameiginlegt að hafa hlotið styrk frá Leiklistarráði. Við förum engu að síður yfir allar umsóknir og gefum þeim stig í samræmi við okkar valferlisreglur,“ segir Friðrik og bætir við: „Leikárið hér endurspeglar þær áherslur og viðfangsefni sem eru listafólki sjálfstæðu leikhópanna hugleikin. Sú áhersla sem er á íslensk verk helst að einhverju leyti í hendur við áherslur Leiklistarráðs sem styrkir fremur íslenska frumsköpun á svið,“ segir Friðrik og tekur fram að hjá valnefnd Tjarnarbíós vegi frum- og nýsköpun verkefna þungt. Aðrir þættir sem valnefndin horfi til séu fagmennska, erindi efnis við íslenska áhorfendur og hvort verið sé að vinna með nýjar vinnuaðferðir.

Tengsl við umheiminn

Að sögn Friðriks bárust um 25 umsóknir í ár. Að minnsta kosti tólf ný verk verða frumsýnd og nokkrar sýningar snúa aftur auk þess sem Tjarnarbíó hýsir þrjár hátíðir þar sem ný verk í bland við eldri verða sýnd, en nánari dagskrá skýrist síðar. Jafnframt mun Tjarnarbíó hýsa erlendar gestasýningar, en sú fyrsta verður White Beauty sem norræni sviðslistahópurinn Mellanmjölk Productions sýnir 1. og 2. september kl. 20. „Sýningin fjallar um uppsveiflu öfgastefna á Norðurlöndunum. Flytjendur sökkva sér í norrænar hefðir, tilfinningaþrungna orðræðu og þá fagurfræði sem stuðningsmenn öfgakenndra afla á Norðurlöndunum þrífast á,“ segir Friðrik og bætir við: „Við lítum á það sem hlutverk okkar að taka á móti erlendum sviðslistamönnum, til að veita áhorfendum jafnt sem íslensku listafólki tækifæri til að verða fyrir erlendum áhrifum og sjá hvað er í gangi erlendis.“

Pota í hið pólitíska landslag

Svartlyng nefnist fyrsta íslenska leikritið sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói í vetur, en allar uppfærslur leikársins nema ein eru á íslenskum verkum. Svartlyng er eftir Guðmund Brynjólfsson í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar og er hér um að ræða fimmta sviðsverk Grindvíska atvinnuleikhússins, GRAL. Frumsýning verður 21. september.

„Þarna er undir rós verið að pota í hið pólitíska landslag. Hér er um að ræða sótsvartan og blóðugan gamanleik með Svein Ólaf Gunnarsson og Sólveigu Guðmundsdóttur í aðalhlutverkum. Hún er ókrýnd drottning sjálfstæðu senunnar.

Af öðrum leikurum má nefna Þór Tulinius sem var hér síðast í Endatafli sem vakti mikla lukku. Sjálfstæða senan einkennist oft af yngra fólki, enda þarf kraft og úthald til að eldast í bransanum. Það er því mikið gleðiefni þegar reynsluboltar taka þátt í uppfærslum sjálfstæðra leikhópa.“

Tvö útskriftarverkefni sýnd

„Við tökum inn í húsið tvö útskriftarverkefni af sviðshöfundabraut í vor frá Listaháskóla Íslands. Fyrra verkefnið er einleikurinn Griðastaður eftir Matthías Tryggva Haraldsson í leikstjórn höfundar sem Allir deyja leikfélag frumsýnir 6. október. Matthías Tryggvi lofar mjög góðu sem höfundur,“ segir Friðrik og bendir á að gaman verði að sjá Jörund Ragnarsson á sviðinu, enda hafi lítið farið fyrir honum síðustu árin meðan hann var í námi í kvikmyndaleikstjórn og handritagerð vestanhafs.

„Þetta er einleikur sem gerist í Ikea og fjallar um dauðleikann, fjöldaframleiðslu húsgagna, Billy-hillur, bældar tilfinningar, mömmur, sænskar grænmetisbollur, fyrrverandi kærustur, krúttlegar skjaldbökur, einsemd, sniðugar kryddhillur, dauðann, Nockeby-sófa, lífið, sorgina og fleira,“ segir Friðrik og tekur fram að ekki megi gefa of mikið upp fyrirfram um framvinduna.

„Mér finnst mikilvægt að við séum að styðja við þá nýju kynslóð sem er að koma inn í leikhúsið og gefa þeim tækifæri,“ segir Friðrik, en seinna útskriftarverkefnið nefnist Istan og er eftir Pálma Frey Hauksson í leikstjórn höfundar. Það verður frumsýnt um mánaðamótin mars/apríl á næsta ári.

„Það verk gerist í smábænum Istan sem hefur alltaf verið rólegur og saklaus. Áhorfendur fá innsýn í hvernig óvæntur atburður á 19. öld hristir upp í þorpinu og lætur íbúa Istan sýna sitt raunverulega andlit. Bæjarbúar eru fljótir að kenna hver öðrum um hvernig farið er fyrir fallega bænum þeirra,“ segir Friðrik og bendir á að Albert Halldórsson fari með um þrjátíu hlutverk í sýningunni.

Afhjúpa tálsýn ameríska draumsins í óperu Bernstein

„Við verðum í samstarfi við Óperudaga í Reykjavík sem hefjast 20. október og standa til 4. nóvember. Hér verður 28. október frumsýnd fyrsta ópera Leonards Bernstein sem nefnist Trouble in Tahiti,“ segir Friðrik og bendir á að Bernstein hefði orðið 100 ára á árinu. „Leikstjóri er Pálína Jónsdóttir, sem nýverið lauk leikstjórnarnámi í Bandaríkjunum, og í helstu hlutverkum eru Ása Fanney Gestsdóttir og Aron Axel Cortes,“ segir Friðrik. Verkinu er lýst sem háðsádeilu sem afhjúpi tálsýn ameríska draumsins, heim samanburðar og neyslukapphlaups á kostnað ástarinnar.

„Við hýsum einnig danska óperu sem nefnist Støv eða Ryk eftir Peter Kohlmetz Møller við texta Neills Cardinal Furio í leikstjórn Jespers Pedersen,“ segir Friðrik, en flytjendur eru sópransöngkonan Nina Sveistrup og brúðumeistarinn Svend E. Kristensen. „Sýningin var tilnefnd til dönsku Reumert-sviðslistaverðlaunanna 2016. Þetta er ljóðræn sýning um endalok heimsins og hvað gæti tekið við að þeim loknum.“

Krefjandi móðurhlutverk

Rejúníon nefnist nýtt leikrit eftir Sóleyju Ómarsdóttur í leikstjórn Árna Kristjánssonar sem leikhópurinn Lakehouse frumsýnir í nóvember. „Verkið fjallar um Júlíu, sem er ekta íslensk ofurkona sem gefur sig 110% í allt sem hún tekur sér fyrir hendur. Hún er eftirsóttur ferlafræðingur með eigið ráðgjafafyrirtæki en móðurhlutverkið reynist henni afar krefjandi. Þegar óumflýjanlegar breytingar vofa yfir hjá fjölskyldunni reynir hún að endurnýja tengslin við æskuvinukonu sína, en saman ætla þær að skipuleggja grunnskólarejúníon aldarinnar,“ segir Friðrik. Með hlutverk Júlíu fer Sólveig Guðmundsdóttir, en aðrir leikarar eru Sara Marti Guðmundsdóttir og Orri Huginn Ágústsson.

Hýsa þrjár hátíðir

„Við hýsum tvær hátíðir fyrir áramót og stöndum fyrir einni sjálf í vor. Fyrst í röðinni er sviðslistahátíðin Spectacular dagana 14.-18. nóvember. Þetta er í fjórða sinn sem Lókal og Reykjavík Dance Festival vinna saman að því að skipuleggja alþjóðlega sviðslistahátíð í höfuðborginni,“ segir Friðrik og bendir á að dagskráin skýrist þegar nær dregur. „En markmiðið er að bjóða upp á frumsýningar á íslenskum verkum eftir marga af framsæknustu sviðslistamönnum landsins, í bland við ný verk virtra, alþjóðlegra listamanna. Einnig verða bráðnauðsynlegar umræður um listina og lífið, vinnustofur og aðrir viðburðir á dagskrá sem eiga við á þeirri mögnuðu stund þegar glugginn inn í hina litríku veröld sviðslistanna opnast.“

Seinni hátíðin á þessu ári verður danshátíðin Ice Hot sem haldin er í desember. „Hér er um að ræða tvíæring sem hóf göngu sína í Svíþjóð 2010 og fór þaðan til Finnlands, Noregs og Danmerkur. Upphaflega stóð aðeins til að halda fjórar hátíðir, en þar sem Ísland hefur alltaf tekið þátt þótti viðeigandi að ljúka verkefninu hérlendis,“ segir Friðrik og tekur fram að til umræðu sé að halda verkefninu áfram þar sem þetta sé orðin afar mikilvæg kaupstefna fyrir norræna dansheiminn. „Enda er þessi hátíð orðin það þekkt vörumerki. Við búumst við mörg hundruð listamönnum að utan auk stjórnenda danshátíðar erlendis,“ segir Friðrik og tekur fram að hátíðin sé fyrst og fremst faghátíð og því ekki opin almenningi.

Fókus á danssenuna

„Annað árið í röð stöndum við fyrir sviðslistahátíðinni Vorblót sem unnin er í samvinnu við danssenuna á Íslandi,“ segir Friðrik, en Vorblótið verður í apríl. „Markmið okkar með hátíðinni er að vekja aukna athygli á danssenunni hérlendis,“ segir Friðrik og bendir á að sjálfstæðir danshópar séu húsnæðislausir hér á landi. „Í ár verður hátíðin unnin í samvinnu við Reykjavík Dance Festival,“ segir Friðrik og tekur fram að dagskráin verði kynnt þegar nær dregur.

Þriðja árið í röð verður Svanurinn með jólasýningu í desember. „Svanurinn er spunahópur sem var stofnaður fyrir fjórum árum og samanstendur af sjö metnaðarfullum spunaleikurum úr röðum Improv Ísland,“ segir Friðrik og tekur fram að grín og glens verði að vanda áberandi í jólasýningunni. Meðal meðlima Svansins eru Auðunn Lúthersson, Guðmundur Felixson og Pálmi Freyr Hauksson.

Árleg aðventusýning

„Á síðasta leikári vorum við með óvenju margar barnasýningar. Á komandi leikári verðum við með eina nýja frumsýningu á vegum leikhópsins Lottu auk þess sem að minnsta kosti þrjár eldri sýningar snúa aftur,“ segir Friðrik.

„Í september sýnir leikhópurinn Bíbí og Blaka ungbarnadanssýninguna Skýjaborgir, en þar er um að ræða fyrstu sýningu hópsins sem frumsýnd var 2012,“ segir Friðrik. Verkið fjallar um tvær verur, Sunnu og Storm, sem vakna furðulostnar upp á dularfullum stað. Þar eru sífelld veðrabrigði og verurnar verða því stöðugt að takast á við nýjar aðstæður.

Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson í samvinnu við Kolbrúnu Halldórsdóttur leikstjóra og Helgu Arnalds brúðu- og leikmyndahönnuð er okkar árlega aðventusýning,“ segir Friðrik og tekur fram að margir líti á það sem hluta af jólaundirbúningnum að koma í Tjarnarbíó og heyra og sjá söguna í flutningi Felix.

Lotta sló öll aðsóknarmet

Jólaævintýri Þorra og Þuru úr smiðju Agnesar Wild snýr aftur,“ segir Friðrik og tekur fram að um sé að ræða töfrandi jólaleikrit fyrir yngstu leikhúsgestina og fjölskyldur þeirra. „Í sýningunni er fjallað um gildi jólanna og hvernig við eigum það til að gleyma okkur í neysluhyggjunni.“

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Rauðhettu eftir Snæbjörn Ragnarsson í leikstjórn Ágústu Skúladóttur í janúar. „Í Rauðhettu er ekki aðeins sögð saga Rauðhettu, heldur blandast Hans og Gréta sem og grísirnir þrír inn í atburðarásina. Lotta hefur frá árinu 2007 sýnt nýjar útisýningar yfir sumartímann. Í fyrravetur tóku þau upp á því að setja upp eldri verk sín í nýjum uppfærslum tíu árum seinna. Fyrsta uppfærslan þeirra hér í Tjarnarbíói var Galdrakarlinn í Oz sem sló öll aðsóknarmet hjá okkur og fyllti húsið 32 sinnum,“ segir Friðrik. Leikarar eru Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Árni Beinteinn Árnason, Sigsteinn Sigurbergsson og Stefán Benedikt Vilhelmsson.

Óttinn við höfnun

Það sem við gerum í einrúmi nefnist nýtt íslenskt kvikmyndaleikhúsverk um einsemdina eftir Sigrúnu Huld Skúladóttur og Söru Martí Guðmundsdóttur í leikstjórn þeirrar síðarnefndu sem Smartílab frumsýnir í janúar. „Verkið segir frá fjórum ólíkum einstaklingum sem búa í sömu blokkinni. Öll eru þau einangruð, en af mismunandi ástæðum. Þrá þeirra til að tengja við aðra drífur þau áfram til aðgerða, hvert á sinn hátt. Óttinn við höfnun getur þó verið ansi hávær þegar safna á kjarki og sumar aðferðir eru árangursríkari en aðrar í mannlegum samskiptum,“ segir Friðrik. Meðal leikenda eru Árni Pétur Guðjónsson, Ragnheiður Steindórsdóttir og Albert Halldórsson.

Annað árið í röð stendur Unnur Elísabet Gunnarsdóttir fyrir smáréttaveislu undir yfirskriftinni Ég býð mig fram. „Þarna er um að ræða listahátíð þar sem listafólk þvert yfir listsviðið skapar hvert sitt örverk, en alls eru örverkin 14,“ segir Friðrik, en frumsýning verður í febrúar. Meðal höfunda eru Friðgeir Einarsson, Gréta Kristín Ómarsdóttir, Helgi Björnsson, Ilmur Stefánsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Kitty Von Sometime og Urður Hákonardóttir, en listrænn stjórnandi og flytjandi er Unnur Elísabet.

Skór og tónleikhús

Í hennar sporum nefnist söngdagskrá með leikrænu ívafi úr smiðju Svanlaugar Jóhannsdóttur söngkonu sem sýnd verður með vorinu. „Hún hefur safnað sögum frá konum sem hún lítur upp til og notar skópörin þeirra sem farartæki fyrir þær sögur,“ segir Friðrik.

Síðasta frumsýning leikársins verður einleikurinn Iður eftir Gunnar Karel Másson í leikstjórn höfundar. „Hér er á ferðinni nýtt íslenskt tónleikhúsverk sem fjallar um lögreglumanninn og fjölskylduföðurinn Mark Kennedy sem reynir að lifa tveimur aðskildum lífum sem uppljóstrari. Í verkinu er velt upp spurningum um raunveruleikann, sjálfsímynd og stað okkar í tilverunni,“ segir Friðrik og bendir á að inn í atburðarásina fléttist aríur og kórlög við texta eftir endurreisnarskáldið John Donne sem hafa að leiðarstefi innri baráttu mannsins og spurningar um lífið og dauðann. Leikari sýningarinnar er Hlynur Þorsteinsson, sem útskrifaðist af leikarabraut LHÍ í vor sem leið, en með honum á sviðinu verður Drengjakór Reykjavíkur.

Reksturinn loks kominn á flug

Aðspurður segir Friðrik rekstur Tjarnarbíós loks vera kominn á flug eftir býsna mögur ár. „Þegar húsið opnaði eftir endurbætur 2010 voru leikhópar mjög áhugasamir um að koma hingað inn. Rekstrarmódelið gekk hins vegar ekki upp þar sem húsaleigan reyndist of há miðað við tekjur hópanna,“ segir Friðrik og rifjar upp að framtíðarhúsaleiga hafi átt að fjármagna endurbæturnar.

„Sem betur fer rönkuðu borgaryfirvöld við sér og ákváðu að leggja okkur lið, sem breytti öllu. Frá og með 2014 var innri leiga felld niður samtímis því sem borgin styrkti reksturinn árlega um 10 milljónir á árunum 2014-16, sem hækkað var í 14-15 milljónir fyrir árin 2017-19. Frá þeim tíma hefur reksturinn farið á flug. Þessir fjármunir hafa skilað sér beint í reksturinn og auknum sýningarfjölda með tilheyrandi lífi hér í húsinu. Frá 2014 hefur veltan þannig aukist um 30% milli ára. Þessi aukna velta fer nær óskipt beint til listamannanna, enda rennur aðeins lítið brot af henni til Tjarnarbíós til að halda starfseminni gangandi,“ segir Friðrik og bendir á að 50% af rekstrarfé Tjarnarbíós sé sjálfsaflafé.

Úr 4 í 40 þúsund gesti

„Þegar reksturinn var sem þyngstur komu aðeins um 4.000 áhorfendur í húsið, en á síðasta leikári voru útgefnir leikhúsmiðar um 20 þúsund,“ segir Friðrik og tekur fram að annar eins fjöldi hafi komið í húsið á aðra viðburði en leiksýningar, s.s. á fríar hátíðir, tónleika, umræðufundi og leiklestra.

„Annar mælikvarði yfir hversu blómlegt starfið er hér í Tjarnarbíói birtist í því að tilnefningum til Grímuverðlaunanna hefur fjölgað milli ára sem og verðlaunum til sjálfstæðu leikhópanna,“ segir Friðrik, sem samtímis því að vera framkvæmdastjóri Tjarnarbíós er framkvæmdastjóri Bandalags sjálfstæðra leikhúsa.

Enn svigrúm til að vaxa

Spurður hvort umfang rekstursins í Tjarnarbíói geti haldið áfram að vaxa svarar Friðrik því játandi. „Ramminn okkar afmarkast af einu sviði sem rúmar 180 áhorfendur í sæti og fjölda daga í árinu. Svigrúmið til að vaxa varðandi áhorfendafjöldann er enn til staðar auk þess sem húsið hefur staðið nánast tómt yfir sumartímann,“ segir Friðrik og bendir á að stjórnendur hússins hafi skoðað þann möguleika að bjóða erlendum leikhópum að æfa og sýna í Tjarnarbíói yfir sumartímann.

„Mér leiðist að tala um grasrót, því mér finnst orðið ekki nógu umfangsmikið. Vissulega erum við að næra og gefa fólki tækifæri til að stíga sín fyrstu skref – en um leið býr sjálfstæða senan yfir miklum reynsluboltum. Í raun má segja að við séum í framvarðarsveit sviðslista, því hér eru teknar listrænar áhættur, hér er verið að vinna með nýja hluti hvort sem eru ný íslensk verk eða nýjar aðferðir auk þess sem listafólkið þarf að geta unnið sjálfstætt. Fólk hér er óhrætt við að sækja fram og tilbúið að hlaupa fram og mæta áhorfendum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson