Tenniskonan Serena Williams greindi frá því á blaðamannafundi á laugardaginn seinasta að þau muni ekki halda upp á afmæli dóttur sinnar, Olympiu. Dóttir Williams og eiginmanns hennar Alex Ohanian, Olypmpia verður eins árs á laugardaginn næsta, 1. september. Ástæðan er trúarleg, en Williams er Vottur Jehóva. Ohanian er það hins vegar ekki.
Vottar Jehóva fagna ekki afmælum en samkvæmt heimasíðu Votta Jehóva eru það hátíðahöld sem Guð hefur vanþóknun á. Vottar Jehóva telja hefðina, að halda upp á afmæli, vera runna úr heiðnum sið.
A post shared by Serena Williams (@serenawilliams) on Aug 26, 2018 at 1:12pm PDT