Breski fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan gagnrýndi tímaritið Cosmopolitan fyrir að hafa fyrirsætu í yfirstærð á forsíðu sinni. Fyrirsætan, Tess Holiday, prýðir forsíðu breska Cosmopolitan í október.
Morgan birti mynd af forsíðunni á Instagram-síðu sinni og skrifar við myndina að myndin sé jafnhættuleg og afvegaleiðandi og fyrirsætur í litlum stærðum. „Þetta er forsíðan á Cosmo, nú þegar Bretland berst við offituvandann sem aldrei fyrr. Mér skilst að við eigum að líta á þetta sem „stórt skref fram á við í líkamsvirðingu“. Þvílíkt rugl.“
Holiday hefur svarað fyrir sig. „Ég er bandarísk svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af mínum feita rassi. Hafðu frekar áhyggjur af því hvað þú er andstyggileg manneskja sem vælir yfir því að vera mín á forsíðu glans-tímarits hefur áhrif á þitt þröngsýna líf,“ skrifar Holiday.
A post shared by Piers Morgan (@thepiersmorgan) on Aug 30, 2018 at 6:16am PDT