Myndirnar úr Lux keppninni á RIFF

Stilla úr kvikmyndinni Kona fer í stríð.
Stilla úr kvikmyndinni Kona fer í stríð.

Kvikmyndirnar sem tilnefndar voru til Lux-verðlaunanna verða sýndar á RIFF í lok mánaðarins en hátíðin verður haldin 27. september til 7. október.

Um er að ræða verðlaun Evrópuþingsins og eru þau að því er fram kemur í tilkynningu ein virtustu kvikmyndaverðlaun Evrópu. Kvikmynd Benedikts Erlingssonar, Kona fer í stríð, er ein þriggja mynda sem keppa um titilinn besta mynd ársins í Evrópu. Hinar tvær verða sýndar á hátíðinni en verðlaunin eru afhent 14. nóvember. Styx heitir önnur þeirra og er þýsk-austurrísk framleiðsla eftir leikstjórann Wolfgang Fischer. Hin myndin nefnist The other side of everything sem er serbnesk-katörsk-frönsk framleiðsla eftir Milu Turajlić. 

Stikla úr Styx.
Stikla úr Styx.

„Mynd Fischer, Styx, fjallar um Rike, fertuga konu sem er læknir, lifir fyrirmyndarlífi og er eins og táknmynd vestrænnar velgengni, hamingjusöm og árangursrík í starfi. Hún er vel menntuð, sjálfsörugg og einbeitt. Við kynnumst Rike í daglegu lífi sínu sem læknir á bráðavakt áður en við fylgjumst með henni upplifa draum sinn um að sigla ein um Atlantshafið. Hún stefnir á Ascension-eyjar sem eru sunnan miðbaugs milli Afríku og Suður-Ameríku. En draumaferðin hennar tekur óvænta stefnu þegar hún lendir í stormi og eftir að honum lygnir sér hún fiskibát. Um hundrað flóttamenn eru í fiskibátnum og við það að drukkna. Hún hringir eftir hjálp sem virðist ekki vera á næsta leiti og hún þarf því að taka mikilvægar ákvarðanir og með hraði. 

Stikla úr The other side of everything.
Stikla úr The other side of everything.

Mynd Turajlić er á mörkum heimildarmyndar og leikinnar myndar. Á heimili móður Turajlic eru dyr sem ekki hafa verið opnaðar í 70 ár. Móðir hennar er prófessor í háskólanum í Belgrad og lék mikilvægt hlutverk í pólitískri andstöðu við serbneska einræðisherrann Slobodan Milosevic á tíunda áratug síðustu aldar. Verkið er marglaga og leiðir áhorfandann inn í sögu Serbíu og fjölskyldu Turajlic. Allt frá því að Belgrad var frelsuð árið 1945, í gegnum kommúnismann frá 1946, stúdenta óeirðirnar 1968, Balkanstríðin á tíunda áratugnum, NATO-árásirnar 1999, fall einræðisherrans árið 2000 og til dagsins í dag,“ segir í fréttatilkynningu frá RIFF.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler