Skór Garland fundust 13 árum eftir þjófnað

Rauðu skórnir sem Judy Garland klæddist í Galdrakarlinum frá Oz …
Rauðu skórnir sem Judy Garland klæddist í Galdrakarlinum frá Oz eru taldir meðal verðmætustu leikmuna kvikmyndasögunnar, voru tryggðir fyrir eina milljón dollara

Rúbínrauðu skórnir sem Judy Garland klæddist í hlutverki sínu sem Dórótea í kvikmyndinni um Galdrakarlinn frá Oz fundust nýlega, 13 árum eftir að þeim var stolið af safni í Minnesota.

Skónum var stolið úr safninu nótt eina árið 2005, eftir að brotist var inn um glugga á safninu. Vitað er um þrjú önnur pör rauðu skónna sem Garland klæddist í myndinni.

Gefandi, sem ekki vildi láta nafns síns getið, bauðst til að greiða eina milljón dollara (andvirði um 109 milljóna króna á núvirði) fyrir upplýsingar um nafn þjófsins og staðsetningu skónna.

Tilboðið um fundarlaunin rann út 10 árum eftir að skónum var stolið án þess að nokkuð spyrðist til þeirra og segir BBC ekki vitað til þess að fundur skónna nú tengist fundarlaunaboðinu.

Skórnir, sem eru taldir meðal verðmætustu leikmuna kvikmyndasögunnar, voru tryggðir fyrir eina milljón dollara en að mati sérfræðinga er andvirði þeirra í dag tvisvar sinnum hærra.

Skórnir voru í láni frá safnaranum Michael Shaw er þeim var stolið af Judy Garland-safninu í Grand Rapids, sem var fæðingarstaður Garland. Engar vísbendingar, hvorki fingraför né fótspor, fundust á vettvangi og eftirlitsmyndavélin var óvirk kvöldið sem þeir hurfu.

„Mér leið eins og ég hefði verið kýldur í magann þegar ég fékk símtalið,“ sagði Shaw í samtali við Newsweek árið 2015. „Hnén gáfu sig og ég féll í gólfið. Ég hafði passað upp á þessa skó í 35 ár!“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson