Segir þau aldrei hafa verið gift

Geena Davis og Reza Jarrahy eru að skilja.
Geena Davis og Reza Jarrahy eru að skilja. KIM JOHNSON

Í vor birtust fréttir þess efnis að lækn­ir­inn Reza Jarra­hy hefði sótt um skilnað frá eiginkonu sinni, óskar­sverðlauna­leik­konunni Geenu Dav­is. Nú heldur leikkonan því þó fram að hjónaband þeirra hafi aldrei verið löglegt en þau innsigluðu ást sína með brúðkaupsathöfn árið 2001.

Samkvæmt dómsskjölum sem Us Weekly hefur undir höndum bað Davis dómstólinn að vísa málinu frá þar sem þau hefðu í raun aldrei verið löglega gift. Heldur hún því fram að þau hafi viljandi sleppt því að ná sér í pappírana eftir athöfnina. Að sögn leikkonunnar trúðu Davis og Jarrahy því aldrei að þau væru gift, skiluðu aldrei inn skattskýrslum sem hjón og héldu fjármálum sínum aðskildum. 

„Ég skilaði skattskýrslunni minni árið 2009 einn af því að eins og er er ég ekki giftur. Fröken Davis og ég búum saman og ölum upp börnin okkar þrjú saman en erum ekki formlega gift,“ á Jarrahy að hafa skrifað í febrúar 2012. 

Í málinu krefst Jarrahy þess að Davis borgi sér framfærslu auk þess sem vill sameiginlegt forræði yfir börnum þeirra þremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant