Missti þrisvar fóstur á nokkrum mánuðum

Carrie Underwood er vinsæl söngkona.
Carrie Underwood er vinsæl söngkona. AFP

Bandaríska söngkonan Carrie Underwood á von á öðru barni. Hún sagði frá því í viðtali í dag að hún hefði þrisvar sinnum misst fóstur á síðustu tveimur árum.

Underwood er 35 ára. Hún greindi frá því í ágúst að hún og eiginmaður hennar, Mike Fisher, ættu von á barni. Fyrir eiga þau soninn Isaiah sem er þriggja ára. 

Underwood gaf í maí út lagið Cry Pretty og segir í viðtali við CBS Sunday Morning að lagið hafi fjallað um það sem gengið hefði á í lífi hennar síðustu misserin.

„Ég hafði ímyndað mér að árið 2017 yrði árið sem ég færi að semja nýja tónlist og eiga nýtt barn. Ég varð ólétt snemma árs í fyrra en það gekk ekki, jú, þetta kemur fyrir.“

En svo kom annað áfall því um vorið varð hún ólétt aftur en missti einnig það fóstur. Þriðja fóstrið missti hún svo snemma í ár. Hún segist þá hafa farið að hugsa að kannski yrði þetta svona, hún gæti ekki eignast annað barn. Þá hafi hún samið lagið Cry Pretty.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson