Victoria Beckham sýndi sumarlínuna fyrir næsta ár á tískuvikunni í London um helgina. Sýningin var 10 ára afmælissýning. Sögusagnir hafa verið uppi um erfiðleika í 19 ára hjónabandi hennar og David Beckham.
Victoria Beckham gerði sér lítið fyrir og gaf eiginmanni sínum og börnum koss í lok sýningarinnar. Einlægt og fallegt augnablik sem segir meira en mörg orð.
Derek Blasberg, sem þykir leiðandi á sínu sviði sem tískublaðamaður, náði mynd af David Beckham á tískusýningunni þar sem hann sýnist afar stoltur af 10 ára velgengni konu sinnar á þessu sviði.
View this post on InstagramA post shared by Derek Blasberg (@derekblasberg) on Sep 16, 2018 at 9:14am PDT
Börnin virtust skemmta sér konunglega á fremsta bekk á sýningu móður sinnar.
View this post on InstagramA post shared by David Beckham (@davidbeckham) on Sep 16, 2018 at 2:13am PDT