Youtube-stjarna skoðar Ísland

Patrick Starr er staddur á Íslandi.
Patrick Starr er staddur á Íslandi. Skjáskot/Instagram

Youtube-stjarnan Patrick Starr er á Íslandi. Stjarnan sem er þekkt fyrir förðunaráhuga sinn er búin að skoða Suðurlandið síðan í gær en hann er hér með fólki frá snyrtivörufyrirtækinu e.l.f. Cosmatics. 

Hópurinn heimsótti Friðheima í gær og í dag voru Þingvellir viðkomustaður þeirra með stoppi á ION-hótelinu. „Ísland er svo fallegt,“ sagði Starr þegar hann sýndi fylgjendum sínum á Instagram hversu fallegt og stórkostlegt Ísland væri eins og hann lýsti því.

Snyrtivörufyrirtækið e.l.f. Cosmatics er líka duglegt að sýna frá ferðinni á Instagram og er allt merkt fyrirtækinu í bak og fyrir. Ekki bara föt fólksins heldur er bíllinn þeirra líka merktur fyrirtækinu og búið er að skreyta hótel þeirra með púðum og öðru merktu e.l.f. 

skjáskot/Instagram
skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson