Nicole Kidman og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Keith Urban, leika sér að því að geta hvað býr að baki hjá ákveðnum listamönnum. Hvort þeir vinni út frá hjartanu, heilanum eða kynvitundinni, þessu greindi leikkonan frá í nýju viðtali við Marie Claire.
Sjálf segir Kidman að hún sé blanda af þessu öllu en hjartað ráði þó oftast för, en þó ekki alltaf. „Það gengur líka í bylgjum. Ég er með mikla kynvitund. Það er stór hluti af því hver ég er og af mínu lífi,“ sagði Kidman.
Það þarf ekki að koma á óvart að Kidman segist vera með mikla kynvitund og sést það ekki bara á hvíta tjaldinu. Þegar hún og Keith Urban koma fram saman opinberlega fá þau alltaf mikla athygli fyrir hversu mikið þau kyssa og snerta hvort annað.