Söngkonan og kórstjórinn, Helga Margrét Marzellíusardóttir, átti að vera dómari í kóraþættinum Kóarar Íslands á stöð 2 en í dag bárust fréttir af því að hætt hefði verið við framleiðslu þáttanna. Helga Margrét segir þetta hafa verið spennandi verkefni en því miður hafi staðan verið þessi.
„Ég er bara þakklát fyrir því að mér hafi verið treyst fyrir þessu en hef enga stjórn á því að þau hafi hætt við þetta, ekki að nokkru leyti. Vonandi kemur eitthvað skemmtilegt upp,“ segir Helga Margrét í samtali við mbl.is.