Opnar sig um skilnaðinn við Aniston

Jennifer Aniston og Justin Theroux tilkynntu um skilnað sinn í …
Jennifer Aniston og Justin Theroux tilkynntu um skilnað sinn í febrúar á þessu ári. AFP

Leikarinn Justin Theroux opnaði sig í fyrsta skipti um skilnaðinn við leikkonuna Jennifer Aniston í viðtali við New York Times  um helgina. Leikarahjónin tilkynntu um skilnað sinn í febrúar á þessu ári. 

Theroux fór ekki djúpt ofan í saumana á skilnaðinum og minnti blaðamanninn á að þau væru bæði á lífi og lýsti skilnaðinum sem friðsamlegum. „Það er leiðinlegt, en þú veist, við virðum hvort annað nógu mikið að þetta var eins sársaukalaust og það hefði getað orðið,“ sagði leikarinn um skilnaðinn. 

Leikarinn viðurkenndi að skilnaðurinn hafi verið sorglegur en aðeins á þann hátt að vinátta þeirra yrði aldrei sú sama. Hann sagði þó að vinátta þeirra sé að breytast og þau séu bæði stolt af því. 

Þrátt fyrir að tala af yfirvegun um skilnað sinn var hann ekki til í að tala um ástarlíf sitt eftir skilnaðinn þegar blaðamaður spurði hann hvort hann væri að hitta einhverja. 

Jennifer Aniston og Justin Theroux þegar allt lék í lyndi.
Jennifer Aniston og Justin Theroux þegar allt lék í lyndi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson