Fyndnustu konur í heimi?

Þrjár skemmtilegustu konur heims? Goldie Hawn, með dóttur sinni Kate …
Þrjár skemmtilegustu konur heims? Goldie Hawn, með dóttur sinni Kate Hudson í spjallþætti hjá Ellen DeGeneres á dögunum. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Leikkonan Goldie Hawn mætti með dóttur sinni Kate Hudson í spjallþátt Ellen DeGeneres á dögunum. Hawn virðist ekkert eldast með árunum en hún er rúmlega sjötug og nýtur lifsins til fulls. Hún tekur þátt í lífi barnanna sinna og ætlar að vera viðstödd fæðingu sjötta barnabarnsins sem fer að fæðast á hverri stundu.

„Ég er mögulega að missa vatnið í þessum þætti, svo langt gengin er ég,“ segir Hudson í viðtalinu og lýsir hverju hún eigi von á í fæðingu dóttur sinnar.

„Ég frétti að þú hafir mætt með pizzu í síðustu fæðingu,“ spyr DeGeneres.

„Ég var svöng,“ segir Hawn og bætir við. „En ég mætti einnig með magnolíublómið.“

„Hvað var það?“ spyr DeGeneres.

„Hún vildi að ég hugsaði um sköpin mín eins og blómstrandi magnolíublóm,“ segir Hudson.

Seinna í viðtalinu ber DeGeneres upp spurningu sem tengist mynd sem Hawn birti nýverið á Instagram þar sem leikkonan fræga óskar syni sínum til hamingju með daginn en höfuðið á honum er klippt út af myndinni. „Hvað var í gangi á þeirri mynd?“ spyr DeGeneres.

„Já sú mynd! Ég hef mögulega verið búin að taka aðeins of margar melatónín sem eru náttúrulegar svefntöflur. Ég var ekki að átta mig á að brjóstin á mér voru í aðalhlutverki á þessari mynd en ekki sonur minn,“ segir hún og hlær. 

View this post on Instagram

You are my sunshine my only sunshine you make me happy when sky’s are blue.... happy birthday my honey. Xxx love ❤️ you!

A post shared by Goldie Hawn (@officialgoldiehawn) on Sep 7, 2018 at 7:21pm PDT

View this post on Instagram

Need I say more? 🌺@katehudson @theellenshow

A post shared by Goldie Hawn (@officialgoldiehawn) on Sep 20, 2018 at 4:56pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson