„Held mig frá yfirborðskenndum heimi“

Jonas Mekas bregður á leik á einni af götum heimaborgar …
Jonas Mekas bregður á leik á einni af götum heimaborgar sinnar, New York. Ljósmynd/Liz Wendelbo

„Forðastu kvikmyndaskóla, fylgdu eigin hugsjón og festu allt sem þú sérð á filmu,“ eru nokkur þeirra ráða sem hinn óviðjafnanlegi Jonas Mekas gefur upprennandi kvikmyndagerðarfólki. Hann er heiðursgestur RIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, í ár en hún hefst í dag.

Mekas er þekktur sem guðfaðir bandarískrar framúrstefnukvikmyndagerðar. Hann vann náið með listamönnum á borð við Andy Warhol, John Lennon, söngkonunni Nico og Salvador Dali svo aðeins fáir séu nefndir. Nafn hans er órjúfanlega tengt listasenu New York-borgar á sjöunda áratugnum, senu sem setti mark sitt á heiminn allan.

Mekas er meðal annars þekktur fyrir kvikmyndir sínar í dagbókarformi en margir merkir einstaklingar og listamenn hafa birst í þeim, meðal annars Allen Ginsberg, Jackie Kennedy, Warhol, Dali og góðvinur hans George Maciunas sem var upphafsmaður Fluxus-stefnunnar.

Handtekinn af nasistum

Fyrri hluti ævi Mekasar var erfiður. Mekas flúði heimaland sitt Litháen í seinni heimsstyrjöldinni en var handtekinn í Þýskalandi og settur í vinnubúðir nasista. Eftir stríð, þegar hann var 26 ára, var hann fluttur til Bandaríkjanna sem flóttamaður og settist að í Brooklyn í New York og lærði um stund hjá Avant-gardistanum Hans Richter.

Mekas er 95 ára en lætur það ekki stöðva sig. Hann opnar sína fyrstu listasýningu hérlendis í Ásmundarsal í næstu viku og situr fyrir svörum 3. október eftir sýningu á The Sixties Quartet, fjórum stuttmyndum sem gerðar eru upp úr dagbókarmyndum hans. Þar er að finna viðtöl við Jackie Kennedy, John Lennon, Andy Warhol og George Maciuna.

 Úr myndinni Endurminningar af reisu til Litháen eftir Jonas Mekas



Fæddist í litlu þorpi í Litháen

„Ég bý til kvikmyndir og þess vegna er ég kvikmyndagerðarmaður. Ég skrifa ljóð og er því ljóðskáld. En ég er ekki listamaður af því að orðið er svo óljóst í dag, enginn veit hvað það þýðir lengur,“ segir Mekas þegar ég spyr hann við hvaða listform hann kenni sig helst í dag. Hann segist líka enn vera að sinna tónlist. „En hljómsveitin mín, sem var leidd af þeim Ken Wollesen og Dalius Naujo og lék alltaf á frönskum bistro í Brooklyn, leystist upp þegar okkur var hent út af staðnum fyrir að vera með of mikinn hávaða. Við erum að setja hana saman aftur núna í Los Angeles.“

Mekas fæddist í litlu sveitaþorpi í norðurhluta Litháens árið 1922. „Ég ólst upp í algjörum samhljómi við náttúruna. Fyrsta starfið mitt sem unglingur var að tína blóm fyrir grasalækni þar sem ég þekkti öll blóm og jurtir sem uxu í nágrenninu. Í stórborginni líður mér eins og útlaga.“

Sá fyrstu kvikmyndina 15 ára

Spurður um hvaða kvikmyndir hann sá fyrst sem ungur maður segist hann hafa séð fyrstu kvikmyndina fimmtán ára gamall. „Það var eitthvert bandarískt melódrama, ég man ekki eftir neinu úr henni lengur. Síðar, þegar Sovétmenn hertóku Litháen, var ég neyddur til þess að horfa á áróðursmyndir þeirra. Þær voru mjög leiðinlegar. Ég uppgötvaði ekki alvörukvikmyndir fyrr en árið 1949 þegar ég kom til New York-borgar. Ég ákvað um leið að kaupa mér kvikmyndatökuvél og byrja að taka upp. Þá hófst líf mitt í kvikmyndagerð, þegar ég var 27 ára gamall,“ segir Mekas. Ég spyr hvernig hann hafi endað í New York-listasenunni eftir að hafa komið þangað sem flóttamaður. „Ég kom ekkert sjálfur til New York,“ útskýrir hann. „Ég var fluttur þangað af flóttamannasamtökum Sameinuðu þjóðanna eftir að hafa verið í þýskum vinnubúðum í eitt ár og svo í flóttamannabúðum næstu fimm ár, eftir stríðið.“ Hann segist hafa byrjað á dagbókarforminu þegar hann var sex ára gamall. „Ég var með þráhyggju fyrir að halda dagbók. Ég hugsa að það hafi verið sú þráhyggja ásamt þeirri staðreynd að ég hef alls enga hæfileika í að græða mikinn pening á að gera stórar kvikmyndir í fullri lengd að ég fór út í þessa grein.“

 Brot úr Senur úr lífi Andy Warhol sem sýnir Velvet Underground flytja lag sitt Venus in Furs árið 1966.

 

 

Heimilið var afdrep fyrir upprennandi listamenn

Mekas hitti Andy Warhol fyrst heima hjá sér. „Ég bjó í svona „loft“ íbúð á árunum 1961 til 67. Ég elska að búa í svoleiðis heimkynnum, þoli ekki venjulegar íbúðir. Heimili mitt var einskonar afdrep fyrir upprennandi listamenn á þessum tíma; ljóðskáld, málara, tónlistarfólk, kvikmyndagerðarmenn. Enginn þeirra var þekktur. Andy byrjaði að venja komur sínar þangað líka og bara hékk í kringum okkur. Hann var ekki byrjaður að gera kvikmyndir. Hann hitti þessar fyrstu ofurstjörnur sínar þarna og fékk innblástur til að gera eigin kvikmyndir. Það var mjög eðlilegt. Við veittum hvert öðru innblástur.“

– Nú hefur þú unnið með mörgum stórnöfnum í heimi tónlistar og myndlistar. Hvað af þessu fólki þótti þér eftirminnilegast?

„Fólk tekur yfirleitt eftir stóru nöfnunum af þeim sem ég hef unnið með. En þessi stóru nöfn hefðu ekki orðið stór ef þau hefðu ekki verið innblásin af litlu nöfnunum, fólkinu sem byrjar með hugmyndirnar, fólki eins og Angus McLise, Barbara Rubin, Tony Conrad, Piero Heliczer, Jack Smith, Harry Smith, listamönnunum sem bjuggu til landakortið fyrir þá stóru,“ svarar Mekas.

Ég segi honum að ég sé mikill aðdáandi Nico og Velvet Underground og er forvitin um hvernig hann kynntist henni. „Ég kynntist Nico í gegnum Nico Papatakis sem var að hjálpa rithöfundinum Jean Genet að gera Un Chant D'Amour og var meðframleiðandi að Shadows eftir Cassavetes. Ég kynnti Nico og Velvet Underground fyrir Andy,“ segir Mekas. Hann segist alltaf hafa haldið sig innan neðanjarðargeirans.

„Ég held mig frá yfirborðskenndum heimi þar sem gróðasjónarmið ráða ríkjum. Það eru aðrir heimar tónlistar, kvikmynda og myndlistar sem eru miklu meira spennandi. Staðir eins og Brooklyn og London, og um allt. Nýir staðir, ungt fólk, ung orka, ný orka.“

Jonas Mekas segist vera hrifinn af því að á Íslandi …
Jonas Mekas segist vera hrifinn af því að á Íslandi virðast vera til tveir hópar innan listasenunnar, sá sýnilegi og sá ósýnilegi. Mbl.is/ Árni Sæberg

Hluti af lífinu að skapa tónlist

Hvaða ráðleggingar myndi hann gefa ungu kvikmyndagerðarfólki í dag? „Fáðu þér myndavél og byrjaðu að taka upp. Allt, hvað sem er. Forðastu kvikmyndaskóla. Fylgdu eigin hugsjón. Sökktu þér ofan í kvikmyndir, horfðu á þær allar. Líka þær slæmu. Sérstaklega þær slæmu og þær gömlu.“

Mekas hefur komið oft til Íslands, meðal annars á Listahátíð árið 2008. Hvernig er upplifun hans af Íslandi og listasenunni hér? „Mér finnst gaman að allir syngja og allir flytja tónlist. Það er alveg eins og í þorpinu sem ég ólst upp í. Við sungum alltaf en tókum okkur ekkert alvarlega sem tónlistarfólk. Að skapa tónlist var bara hluti af lífi okkar. Það er eðlilegt, eða það er eins og þetta á að vera. Ég er líka hrifinn af því að á Íslandi eru tveir hópar, sá sýnilegi og sá ósýnilegi. Ég get bara rétt ímyndað mér hverskonar tónlist er búin til í hinu ósýnilega Íslandi.“

Björk Guðmundsdóttur bregður fyrir í mynd eftir Mekas. Hvernig kom það til? „Ég myndaði hana þegar hún fór með mig og Marinu Abramovic út á flugvöll fyrir svona fjórum eða fimm árum, hún var að benda mér á hvar hún hefði átt heima. Það var fallegt augnablik og ég notaði það skot til að enda myndina.“

Frá uppsetningu einkasýningar Jonas Mekas í Ásmundarsal sem nefnist Like …
Frá uppsetningu einkasýningar Jonas Mekas í Ásmundarsal sem nefnist Like a Flower in a Field og opnar þann 3.október.

Eðlilegt að ná 100 ára aldri

Sýning Mekas í Ásmundarsal er samsett, að hans sögn, af innsetningum og ýmsum eldri kvikmyndaverkum. „Viðfangsefni mín eru öll tengd lífinu í kringum mig, vinum mínum, daglegu lífi. Ég hef engan áhuga á fortíðinni. Ég hef áhuga á samtímanum, hann er það eina sem skiptir máli og við höfum stjórn á, ef við viljum það. Það er svo mikill ljótleiki í fortíðinni og það hefur enn áhrif á samtímann, horfðu bara á það sem er að gerast í heiminum í dag, þjóðernishyggjan, úrelt skipulögð trúarbrögð, langærar minningar frá tímum ættbálkanna sem snúast um hefnd, rasisma, þetta kemur allt frá minningum. Mér finnst best að halda mig við augnablikið sem við lifum í og framtíðina. Ég er sjálfur súfisti þegar kemur að andlegu hliðinni. Ég trúi á dýrlinga, engla, spámenn og dulspekinga, eins og Jakob Boehme, Meister Eckhardt, Hermes Trismegistus og Sankti Teresa frá Avilu. Lestu ævisögu hennar! Og já, hinn mikla Ibn Arabi.“

Nú er Mekas að nálgast hundraðasta æviár sitt. Ég spyr hann hverju hann þakki almennan hressleika og háan aldur. „Hár aldur minn er ekkert sérstakur. Það er eðlilegt fyrir fólk að lifa þar til það verður hundrað ára, finnst mér. Ef maður deyr fyrr hefur eitthvað farið úrskeiðis. Of mikill matur, of miklar áhyggjur, of mikið kynlíf og svo framvegis. Áhyggjur af morgundeginum. Ég hef aldrei áhyggjur af honum. Ég læt engla leiða mig áfram í lífinu. Maður verður bara að hlusta á himinhvelfingarnar. Það er erfiðasti hluti lífsins, endalausi parturinn. Mér líkar það. Það er það sem ég geri, það er vinnan mín. Afgangurinn gerist svo sjálfkrafa.“

RIFF sýnir eftirfarandi myndir eftir Jonas Mekas á RIFF

Litháen og fall Sovétríkjanna, Úrklippur úr lífi hamingjusams manns, Endurminningar af reisu til Litháen, Andvökusögur, Sixtís kvartettinn: Senur úr lífi Andy Warhol: Vinabönd og vegamót; Zefiro Torna eða senur úr lífi George Maciunas, Hann á afmæli hann John og Hinum megin við paradís. Sýningardagar og tímar á www.riff.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant