Gróflega má áætla að heildartekjur af miðasölu á tónleika enska tónlistarmannsins Eds Sheerans á Laugardalsvelli 10. ágúst 2019 séu um 550 milljónir króna, en 30 þúsund miðar seldust upp á tveimur tímum á vefsíðunni Tix.is í gærmorgun og tæplega 18 þúsund þurftu frá að hverfa, miðalausir.
U.þ.b. 3,5 miðar seldust á mann. „Það hefur aldrei sést neitt í líkingu við þetta á Íslandi. Þetta er algjörlega nýtt „level“ á alla kanta,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson hjá Senu Live og bætir við að 23 þúsund manns hafi verið í stafrænni biðröð þegar miðasalan var opnuð.
Tæplega 10 þúsund miðar voru seldir í sæti og um 20 þúsund í stæði, en miðaverð á tónleikana er frá 15.990 krónum að 29.990 krónum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.