Ekki einn í borg ástarinnar

Justin Theroux var í París á mánudaginn með leikkonunni Lauru …
Justin Theroux var í París á mánudaginn með leikkonunni Lauru Harrier. AFP

Justin Theroux virðist vera að jafna sig á skilnaðinum við Jennifer Aniston en leikarinn var staddur í borg ástarinnar í gær, mánudag. Sást Theroux ganga um götur Parísar með leikkonunni Lauru Harrier. 

E! greinir frá því að hinn 47 ára gamli Theroux og hin 28 ára gamla Harrier hafi sést saman í París. Voru þau bæði með sólgleraugu en klæðnaður Harrier vakti meiri athygli en Theroux enda klædd í rautt frá toppi til táar. 

Laura Harrier.
Laura Harrier. AFP

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Theroux og Harrier eyða tíma saman en í lok maí voru þau saman í fríi í Frakklandi ásamt leikkonunum Emmu Stone, Siennu Miller og blaðamanninum Derek Blasberg. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson