Söngvarinn Justin Bieber og fyrirsætan Hailey Baldwin gengu í hjónaband í september án þess að halda formlega athöfn og veislu. Allt gerðist mjög hratt og skrifuðu hjónin ekki undir kaupmála áður. Auðæfi Bieber eru metin á 250 milljónir Bandaríkjadala.
TMZ greinir frá því að bæði Bieber og Baldwin hafi haft samband við lögfræðing sama dag og þau gengu í hjónaband og er afar ólíklegt að þau hafi skrifað undir kaupmála samdægurs. Hægt er að skrifa undir kaupmála eftir hjónavígslu en ekkert virðist vera í gangi í þeim málum.
Heimildarmaður heldur því fram að Bieber sé svo ástfanginn að hann þurfi ekki á kaupmála að halda.