Sara segir stera ekki ástæðu hjartaáfallanna

Sara og Chris Miller.
Sara og Chris Miller. skjáskot/Instagram

Kærasti Söru Heimsidóttur, Chris Miller, fékk tvö hjartaáföll í röð á mánudaginn, Sara upplýsti um þetta á Instagram í nótt. Hún segist hafa verið nálægt því að missa hann en segir líðan Miller vera betri eftir að hann fór í aðgerð.

Sara leggur mikla áherslu á að sterar hafi ekki verið ástæða hjartaáfallanna þrátt fyrir að hann hafi verið í mörg ár í vaxtarrækt og það sem því fylgir hafi kannski ekki hjálpað til. Segir hún að læknarnir kenni frekar erfðafræðilegum þáttum um hjartaáföllin. 

Sara var gift vöðvatröllinu Rich Piana en hann lést í fyrrasumar 18 dögum eftir að hann missti meðvitund á heimili sínu. Piana var hjartveikur og fundust 20 flöskur af sterum á heimili hans þótt ekki sé vitað hvort það hafi haft áhrif á lát hans. Í fyrra sagði Sara að hún hefði enn verið löglega gift Piana þegar hann lést. 


 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant