„Verður varla mikið betra“

Ólafur með leikurunum Ben Lloyd-Hughes, Florence Pugh, Georgina Bevan og …
Ólafur með leikurunum Ben Lloyd-Hughes, Florence Pugh, Georgina Bevan og Scott Chambers. Ljósmynd/Graeme Hunter

Hrollvekjan Malevolent, í leikstjórn hins alíslenska Ólafs Jóhannessonar, sem gengur undir listamannsnafninu Ólafur de Fleur Jóhannesson, verður frumsýnd á streymisveitunni Netflix á morgun, föstudag. Frumsýning er kannski ekki rétta orðið þar sem um streymisveitu í sjónvarpi er að ræða og því réttara að segja að kvikmyndin verði þá aðgengileg notendum veitunnar sem nær til 190 landa, hvorki meira né minna.

Systkini og svikahrappar

Kvikmyndin er sú fyrsta bandaríska sem Ólafur leikstýrir og fóru tökur fram í Skotlandi, í Glasgow og nágrenni borgarinnar fyrir um tveimur árum og var Bjarni Felix Bjarnason kvikmyndatökustjóri. Handrit myndarinnar er eftir Ben Ketai og Evu Konstantopoulos og byggt á bók Konstantopoulos, Hush. Í myndinni segir af systkinum, Jackson og Angelu, sem gefa sig út fyrir að vera draugabanar en eru í raun svindlarar, hafa fé af syrgjandi fólki með fölsuðum tækjabúnaði, tæknibrellum og meintri miðilsgáfu Angelu. Systkinin eru fengin til að rannsaka reimleika á gömlu munaðarleysingjahæli fyrir stúlkur og komast að því að hryllilegir atburðir áttu sér þar stað 25 árum fyrr. Fljótlega átta þau sig á því að reimleikar eru ekki það versta við staðinn því eitthvað mun verra leynist á hælinu.

Með hlutverk systkinanna fara ensku leikararnir Florence Pugh og Ben Lloyd-Hughes en af öðrum leikurum má nefna Celiu Imrie sem er einnig ensk og þekkt leikkona.

Ólafur djúpt hugsi við tökur í Skotlandi.
Ólafur djúpt hugsi við tökur í Skotlandi. Ljósmynd/Graeme Hunter

Endurræsti sig

Ansi langt er um liðið frá því síðast spurðist til Ólafs og engu líkara en hann hafi lagst í híði. Blaðamaður ræddi síðast við hann í maí árið 2015 og þá um sömu kvikmynd sem reyndar hét þá Hush og átti að vera með annarri leikkonu í aðalhlutverki, Sophie Cookson. Eins eins og gengur í kvikmyndabransanum breyttust áætlanir, Cookson reyndist of upptekin fyrir verkefnið og önnur leikkona var því fundin í hennar stað og titli kvikmyndarinnar var líka breytt. Tökur hófust svo árið 2016.

En hvar hefur Ólafur eiginlega verið?

„Ég þaggaði aðeins niður í mér og lærði að lesa og skrifa upp á nýtt,“ svarar hann, kátur að vanda. Hvað á hann við með því? „Það er búið að vera mikið álag á mér, eins og gengur og sérstaklega eftir að ég skaut þessa mynd. Ég ákvað því að fara bara að æfa mig í að skrifa kvikmyndahandrit.

Ég var búinn að gera mikið af því en langaði til að endurræsa mig og tók mér góðan tíma í að hreinsa pallettuna og læra þetta upp á nýtt. Þetta hefur verið rosalega gefandi og ég hef verið að skrifa mikið,“ svarar Ólafur. Bæði hafi hann skrifað fyrir sjálfan sig og fengið góð verkefni erlendis frá sem hann sé að vinna í þessa dagana.

Marineringin er mikilvæg

Ólafur segir langt ferli að baki Malevolent, nýir leikarar hafi m.a. verið fundnir og handritið betrumbætt áður en ráðist var í tökur. Að þeim loknum tók svo klippingin við og stóð yfir í eina 18 mánuði með hléum. „Þessi marineringartími gerir oft gæfumuninn,“ segir Ólafur um þennan langa tíma sem myndin var í klippiherberginu.

– Marineringin er líka lykilatriði þegar maður er að grilla ...

„Jú, jú, nákvæmlega og það er ekki oft sem það er hægt en þarna var það blessunarlega hægt,“ segir Ólafur. Allur gangur sé á því hversu langan tíma klipping taki í kvikmyndagerðarferlinu. „Yfirleitt eru þetta þrír mánuðir sem maður fær í leikstjóraklippið og svo tekur annar klippari við. Svo kem ég inn aftur og sá þriðji og svo gengur þetta bara hægt og rólega,“ útskýrir hann.

Ólafur segir það hafa verið áhugaverða reynslu að vinna í bandarísku kvikmyndabatteríi og geta einbeitt sér alfarið að leikstjórninni. Hann hafi oftast framleitt sjálfur sínar kvikmyndir og blessunarlega getað sleppt þeim hluta kvikmyndagerðarinnar að þessu sinni.

Ólafur leggur leikurum línurnar.
Ólafur leggur leikurum línurnar. Ljósmynd/Graeme Hunter

Draugalegur kastali

Malevolent er fyrsta hrollvekja Ólafs og segist hann hafa stúderað slíkar kvikmyndir til að undirbúa sig fyrir tökur. „Þetta er mikil list og það þurfti þó nokkurn undirbúning til að geta tekið almennilega þátt í þessu,“ segir hann um hrollvekjuformið. Hann hafi skoðað vel bæði gamlar hrollvekjur og nýjar, til dæmis Shining og aðrar sígildar.

Hrollvekjan var tekin í gömlum kastala í Skotlandi og heyra má á Ólafi að tökustaðurinn hafi verið frekar draugalegur. Spurður að því hvort hann hafi ekki gist í kastalanum segist Ólafur alls ekki hafa verið til í það. „Það sem var eiginlega skemmtilegast við þetta var að vinna með átta ára telpum. Þær voru að vinna við mjög erfiðar aðstæður en voru oftast þær fullorðnustu á tökustað,“ segir Ólafur en eins og sjá má af stillum og stiklum úr kvikmyndinni eru þessar stúlkur heldur hrollvekjandi.

Nýi völlurinn

„Þetta er bara nýi völlurinn,“ segir Ólafur um sýningarvettvang kvikmyndarinnar, hina gríðarvinsælu streymisveitu Netflix. „Aðgengi er orðið svo rosalega gott að þetta verður varla mikið betra, að komast upp á svona svið,“ bætir hann við.

– Hefurðu fengið fleiri verkefni út á þessa kvikmynd?

„Það á bara eftir að koma í ljós,“ svarar Ólafur sem er að vanda með nokkur verkefni á teikniborðinu. „Ég hef verið að skrifa og líka kenna svolítið handritaskrif. Svo hef ég verið að æfa fólk í kvikmyndaleik, litla hópa,“ segir hann.

En hvert er næsta leikstjórnarverkefni Ólafs de Fleur Jóhannessonar? „Ég er að fara að gera heimildarmynd í Los Angeles á næsta ári og svo er ég bara að skoða nokkur verkefni,“ segir Ólafur. Um heimildarmyndina vill hann sem minnst segja að svo stöddu.

Á rauðu teppi í IKEA

Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvernig Ólafur muni fagna frumsýningunni sem fer að þessu sinni ekki fram í bíói heldur í þúsundum, ef ekki milljónum, sjónvarpstækja víða um heim. Ætlar hann að sitja heima með poppkorn í skál og opna kampavínsflösku? „Nei, ég fer upp í IKEA, fæ rautt teppi þar og ætla að ganga eftir því og vera með myndina í eyrunum. Þá er eins og ég sé á rauða dreglinum og enginn veit hvað er í gangi.“

Hér má sjá stiklu fyrir hrollvekju Ólafs:

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson