Fékk enga athygli fyrir kossinn

Madonna kyssti þær Britney Spears og Christinu Aguilera í opnunaratriði …
Madonna kyssti þær Britney Spears og Christinu Aguilera í opnunaratriði VMA-hátíðarinnar árið 2003. mbl.is/WIN MCNAMEE

Söngkonan Christina Augilera greindi frá því í viðtali að hún hefði ekki fengið mikla athygli fyrir kossinn fræga við Madonnu á VMA-verðlaunahátíðinni árið 2003 enda var myndavélinni beint annað. Britney Spears kyssti Madonnu fyrst og fengu þær hins vegar mikla athygli. 

Augilera ræddi atvikið í þætti Andy Cohen og segir það hafa verið skrítið að hennar koss hafi ekki verið sýndur. Myndavélinni var beint að Justin Timberlake, fyrrverandi kærasta Spears, til að sýna viðbrögð hans. 

Þegar Aguilera sá dagblöðin daginn eftir hugsaði hún með sér að hún hefði verið skilin út undan í umfjölluninni. Hún segir það hins vegar ekki hafa truflað sig mikið þar sem það var mikið að gera hjá henni á þessum tíma og allt gerðist svo hratt. 

 Hér má sjá myndband af kossinum fræga. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant