Leikarinn Veren Troyer féll fyrir eigin hendi í apríl síðastliðnum, að sögn dánardómstjóra í Los Angeles.
Troyer, sem var 49 ára og 81 sentimetra hár, var þekktastur fyrir að leika Mini-Me í Austin Powers-myndunum. Hann lék einnig Griphook í fyrstu kvikmyndinni um Harry Potter.
Eftir krufningu og frekari rannsóknir greindi dánardómstjórinn frá því að Tryoer hafi látist af völdum áfengis og komst að þeirri niðurstöðu að dánarorsök hans hafi verið sjálfsvíg, að sögn BBC.
Troyer talaði opinskátt um baráttu sína við Bakkus og fór í áfengismeðferð á síðasta ári. Í færslu sem hann skrifaði til aðdáenda sinna á Facebook sagði hann að „þrátt fyrir að þetta hafi ekki alltaf verið auðveld barátta, er ég tilbúinn til að halda baráttunni minni áfram einn dag í einu“.