Var ást við fyrstu sýn

Eugenie prinsessa og Jack Brooksbank eru hjón.
Eugenie prinsessa og Jack Brooksbank eru hjón. AFP

Eugiene prinsessa og Jack Brooksbank gengu í hjónaband í dag, 12. október. Hjónin töluðu fallega um hvort annað í viðtali fyrir brúðkaupið. Í broti úr viðtalinu sem birtist á vef Daily Mail kemur í ljós að ást þeirra var ást við fyrstu sýn. 

Prinsessan og Brooksbank kynntust á skíðaferðalagi í Sviss en Brooksbank segist hafa komið auga á Eugiene áður en hún sá hann. „Ég sá þig fyrst, er það ekki? Og við bara störðum á hvort annað,“ sagði Brooksbank. 

Eugenie sagðist hins vegar hafa hugsað með sér hversu asnalega húfu hann hefði verið með og hvaða maður þetta væri eiginlega. „Og svo komstu til mín og heilsaðir mér og ég með fiðrildi í maganum og stressuð,“ sagði prinsessan. 

„Ég er mjög, mjög hrifin af þessum manni, mig langar virkilega til þess að hann sé líka hrifinn af mér,“ segist Eugenie hafa hugsað og fljótlega fékk Eugenie það staðfest að hugur hans var sá sami. 

Jack Brooksbank og Eugenie.
Jack Brooksbank og Eugenie. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson