Sögð hafa slitið trúlofuninni

Pete Davidson og Ariana Grande sýndu ást sína á rauða …
Pete Davidson og Ariana Grande sýndu ást sína á rauða dreglinum í sumar. AFP

Söngkonan Ariana Grande og grínistinn Pete Davidson eru sögð hafa slitið trúlofun sinni en parið trúlofaði sig í byrjun sumars eftir stutt samband. TMZ greindi frá sambandsslitunum í gærkvöldi. 

Heimildarmenn segja parið hafa hætt saman um helgina. Tímasetningin mun ekki hafa verið rétt fyrir þau. Þau segjast elska hvort annað enn þá en rómantíski hluti sambandsins er hins vegar búinn. 

Grande og Davidson greindu frá trúlofun sinni í júní á þessu ári en fréttir af sambandi þeirra bárust aðeins nokkrum vikum fyrr. Árið hefur verið köflótt hjá Grande en í september lést fyrrverandi kærasti Grande, rapparinn Mac Miller. 

Ariana Grande og Pete Davidson.
Ariana Grande og Pete Davidson. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson