Lýsir hjónabandinu sem erfiðu

David Beckham hefur verið kvæntur Victoriu Beckham í rúm 19 …
David Beckham hefur verið kvæntur Victoriu Beckham í rúm 19 ár. AFP

Knattspyrnuhetjan David Beckham opnar sig um hjónaband sitt og Victoriu Beckham í áströlskum sjónvarpsþætti samkvæmt The Sun. Viðtalið hefur enn ekki birst en í auglýsingu fyrir það segir hann að hjónabandið geti reynst erfitt. 

„Að hafa verið gift jafnlengi og við höfum, það er alltaf erfitt,“ sagði Beckham þegar minnst var á næstum því 20 ára langt hjónaband hans og Victoriu Beckham. „Það verður aðeins erfiðara.“

Hjónin eru mikið í kastljósi fjölmiðla og segir hann þau reyna að vernda börn sín frá fjölmiðlum. Sögusagnir um skilnað þeirra heyrast reglulega nú síðast í sumar. Síðan þá hafa bæði David og Victoria tjáð sig um hjónabandið en fatahönnuðurinn og fyrrverandi kryddpían tjáði sig um samband þeirra í viðtali við Vogue fyrir nokkrum vikum. 

 „Við átt­um okk­ur bæði á því að við erum sterk­ari sam­an en sem ein­stak­ling­ar,“ útskýrði frú Beckham í viðtalinu. „Myndi annað okk­ar vera í þeirri stöðu sem við erum nú í ef við hefðum ekki hist eða verið sam­an í öll þessi ár?“

Victoria og David Beckham.
Victoria og David Beckham. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson