Þrír heppnir lesendur Morgunblaðsins sem svöruðu happatölunni rétt þessa vikuna í Happaleik blaðsins voru dregnir út í beinni útsendingu á K-100 þennan morguninn.
Það borgar sig heldur betur að taka þátt en Guðlaug B. Olsen hlaut flug til Akureyrar fyrir tvo með Air Iceland Connect ásamt tveimur miðum á leiksýninguna Kabarett hjá Leikfélagi Akureyrar. Þá hlaut Ólöf Harðardóttir gistingu fyrir tvo hjá Íslandshótelum og að lokum hlaut Hallfríður Frímannsdóttir Afternoon Tea fyrir fjóra hjá Apotek Kitchen + bar.
Ekki missa af Happadegi Morgunblaðsins næstkomandi fimmtudag sem jafnframt verður sá síðasti í bili, enda til mikils að vinna. Kannski verður hann þinn happadagur.