Hafþór Júlíus kvæntist ástinni sinni

Hafþór Júlíus Björnsson birti þessa skemmtilegu brúðkaupsmynd af sér og …
Hafþór Júlíus Björnsson birti þessa skemmtilegu brúðkaupsmynd af sér og eiginkonu sinni, Kelsey Morgan Henson. skjáskot/Instagram

Game of Thrones-stjarnan Hafþór Júlíus Björnsson eða Fjallið eins og hann er oft kallaður er búinn að kvænast ástinni sinni, Kelsey Morgan Henson. Hafþór birti skemmtilega mynd af þeim hjónum um helgina og staðfesti hjónabandið. 

Hafþór sem segist vera spenntur fyrir framtíðinni með eiginkonu sinni heldur á Henson á brúðkaupsmyndinni sem hann birti og kemur stærðarmunurinn bersýnilega í ljós. 

Parið kynntist á veitingastað í Kanada í september í fyrra. Var Hafþór Júlíus í Kanada til að keppa í keppninni um sterkasta mann í heimi en Henson sem er kanadísk var þjónn á veitingastaðnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson