Búin að leyna kærastanum í hálft ár

Jennifer Garner horfir fram á bjartari tíma.
Jennifer Garner horfir fram á bjartari tíma. AFP

Jennifer Garner og Ben Affleck eru loksins skilin og Affleck kominn úr meðferð. Bjartari tímar eru fram undan hjá leikkonunni sem er nú sögð vera komin með kærasta. Us Weekly greinir frá því að hinn heppni sé viðskiptamaðurinn John Miller. 

„Þau hafa verið saman í sex mánuði og það er að verða frekar alvarlegt,“ sagði heimildarmaður en Miller er skilinn líkt og Garner.

Annar heimildarmaður vildi meina að Garner drægi fram það besta í Miller. „Hann er örugglega hamingjusamari en hann hefur nokkurn tímann verið. Þetta er ástríkt, heilbrigt samband.“

Garner gekk í hjónaband með Ben Affleck árið 2005 en leikarahjónin fyrrverandi eiga saman þrjú börn. Þau tilkynntu skilnað sinn árið 2015 en hann tók ekki gildi fyrr en í byrjun október.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson