Söngvarinn Justin Bieber er kominn með nýtt húðflúr og það á andlitið. Fékk Bieber sér húðflúrið til þess að innsigla ást sína og fyrirsætunnar Hailey Baldwin. Á eiginkona hans einnig að hafa fengið sér húðflúr.
Page Six staðfesti fréttirnar en húðflúr Bieber er ekki stórt og hefur ekki enn sést á mynd af Bieber. „Það er mjög mjótt og fínt. Og það er ekki heldur hefðbundið parahúðflúr,“ sagði stjörnuhúðflúrlistamaðurinn Keith McCurdy sem vildi ekki segja annað en það að húðflúrið væri upp við aðra augabrúnina og innihéldi nokkur orð.