Coldplay-söngvarinn Chris Martin viðurkenndi í nýrri heimildarmynd um hljómsveitina að hafa verið í rusli eftir skilnaðinn við leikkonuna Gwyneth Paltrow. Félagar hans í hljómsveitinni höfðu miklar áhyggjur af Martin og voru byrjaðir að ímynda sér allt hið versta.
Daily Mail greinir frá því að Martin hafi opnað sig með að hann hafi á tímabili átt erfitt með að njóta alls þess góða í lífinu. Leið honum eins og hann væri einskis virði og skipti ekki máli fyrir neinn.
„Ég var með svo miklar áhyggjur af honum að ég var bara mjög glaður þegar ég fékk skilaboð frá honum á morgnana og vissi bara að hann væri í lagi,“ segir Phil Harvey, fyrrverandi umboðsmaður Coldplay.
Sem betur fer fyrir Martin er lífið betra núna en hann og fyrrverandi eiginkona hans eyða miklum tíma saman með börnunum þeirra tveimur. Hann er í sambandi með leikkonunni Dakotu Johnson en Paltrow er hins vegar nýgift.