Manstu eftir öllum gömlu kærustunum?

Bradley Cooper og Zoe Saldana voru eitt sinn par.
Bradley Cooper og Zoe Saldana voru eitt sinn par. Getty Images for Acura

Bradley Cooper er að gera allt vitlaust með myndinni A Star is Born. Myndin þykir ekki bara góð heldur þykir Cooper sem leikstýrir og leikur í myndinni afar kynþokkafullur. Cooper er búinn að vera með ofurfyrirsætunni Irinu Shayk í þrjú ár og á með henni eitt barn. Gömlu kærusturnar eru ekki síður flottar eins og Us Weekly tók saman. 

Irina Shayk er kærasta Bradley Cooper.
Irina Shayk er kærasta Bradley Cooper. AFP

Suki Waterhouse

Cooper var með bresku leikkonunni Suki Waterhouse í tvö ár á árunum 2013 til 2015.

Suki Waterhouse.
Suki Waterhouse. AFP

Zoe Saldana

Zoe Saldana lék í The Words með Cooper en þau hættu saman tvisvar. Í seinna skiptið árið 2012. 

Zoe Saldana.
Zoe Saldana. mbl.is/AFP

Jennifer Lopez

Stjörnurnar voru að hittast í smá stund árið 2011 stuttu eftir að Lopez skildi við barnsföður sinn Marc Anthony. 

Jennifer Lopez.
Jennifer Lopez. AFP

Olivia Wilde

Leikarinn var að hitta leikkonuna Oliviu Wilde áður en hann byrjaði að hitta Lopez.

Olivia Wilde.
Olivia Wilde. AFP

Renee Zellweger

Zellweger og Cooper eru sögð hafa búið saman í ár áður en myndin þeirra Case 39 var frumsýnd árið 2010. 

Renee Zellweger.
Renee Zellweger. AFP

Cameron Diaz

Diaz og Cooper voru að hittast haustið 2007 og fóru meðal annars á stefnumót með Ashton Kutcher og Demi Moore þegar þau voru gift.

Cameron Diaz.
Cameron Diaz. AFP

Jennifer Esposito

Cooper og leikkonan Jennifer Esposito giftu sig í desember árið 2006 en það entist ekki lengi og skildu hálfu ári seinna. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant