Leikarinn Leonardo DiCaprio hélt upp á 44 ára afmæli sitt um helgina eins og það væri stórafmæli. Margar af frægustu stjörnum í heimi mættu í afmælið sem fram fór á einkaklúbbi í Los Angeles. Samkvæmt People voru hjónin Jay-Z og Beyoncé með þeim fyrstu til að mæta.
Leikkonurnar Jennifer Aniston og Gwyneth Paltrow voru einnig mættar en þær eiga það sameiginlegt að hafa verið með Brad Pitt. Aniston var gift Brad Pitt á árunum 2000 til 2005. Hin nýgifta Paltrow sem mætti með eiginmanni sínum Brad Falchuk var hins vegar trúlofuð Pitt á tíunda áratug síðustu aldar.
Ekki kemur fram hvort Brad Pitt sjálfur hafi mætt í veisluna en það hefði ekki komið á óvart þar sem þeir Pitt og DiCaprio hafa verið að vinna saman að undaförnu. Leika þeir báðir í mynd Quentin Tarantinos, Once Upon a Time In Hollywood.