Hvað kom fyrir andlitið?

Cheryl í nýja myndbandinu.
Cheryl í nýja myndbandinu. skjáskot/Youtube

Söngkonan Cheryl sendi frá sér nýtt lag í síðustu viku og hefur hún vakið mikla athygli fyrir myndbandið. Finnst mörgum andlit söngkonunnar vera nokkuð breytt og er því jafnvel haldið fram að söngkonan hafi látið lýtalækni eiga við andlit sitt. 

Mirror greinir frá því að umræðan hafi farið af stað á samfélagsmiðlum og lýtalæknir meðal annars talið að hún hafi látið eiga við sig. „Að mínu mati hefur Cheryl fengið sér fyllingar í kinnarnar þar sem kinnbeinin virka meiri og greinilegri. Ég myndi segja að hún hafi líka fengið sér bótox og fyllingu í varirnar,“ sagði lýtalæknirinn. 

Cheryl árið 2016.
Cheryl árið 2016. AFP

Söngkonan ákvað útskýra mál sitt og sagðist fá lítinn svefn en hún á eins og hálfs árs gamlan son. Í viðtali sem birtist seinna greindi hún frá því að allur líkami sinn hafi breyst við barnsburðinn, líka andlitið. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson