Tímaritið GQ valdi fjórar manneskjur sem menn ársins og koma fjórar mismunandi forsíður út. Tennisstjarnan Serena Williams var eina konan sem varð fyrir valinu og hefur forsíða hennar vakið mikla athygli enda er strikað yfir menn og sett orðið woman eða kona í gæsalappir.
Bent hefur meðal annars verið á forsíðuna í fyrra þar sem Gal Gadot var valin kona ársins án gæsalappa. Eru gæsalappirnar kannski sérstaklega umdeildar vegna þess að Williams hefur verið líkt við karlmann vegna þess hversu sterk hún er.
„Fólk sagði að ég hefði fæðst sem strákur bara vegna handleggja minna eða af því ég var sterk,“ sagði Serena Williams meðal annars í viðtali við Harper's Bazaar í vor.
hmm pic.twitter.com/hG4vAtTDTE
— E. Alex Jung (@e_alexjung) November 12, 2018
@GQMagazine Please explain to me why GQ Magazine’s Editorial Team felt that quote marks were necessary on the Serena Williams’ Woman of the Year Cover. I Really Really Need to Know. I’m Expecting an Answer😡🙄🤷🏽♀️🤔👎🏾👎🏾👎🏾👎🏾👎🏾 pic.twitter.com/qGNPNJI4Rq
— Y•S•A•N•N•E (@YsanneBueno) November 13, 2018