Heldur ekki vatni yfir nýju kærustunni

Channing Tatum er kominn með kærustu.
Channing Tatum er kominn með kærustu. AFP

Leikarinn Channing Tatum og tónlistarkonan og Íslandsvinkonan Jessie J hafa verið að hittast að undanförnu. Nú virðist parið vera tilbúið að deila hrifningu sinni á hvort öðru með heimsbyggðinni og halda ekki vatni yfir hvort öðru á samfélagsmiðlum. 

Tatum birti mynd af tónleikum Jessie J í Royal Albert Hall í London á þriðjudaginn. Átti hann erfitt með að lýsa hversu ótrúleg honum fannst kærasta sín vera. Þetta eru ekki fyrstu tónleikar Jessie J sem Tatum mætir á en hann tók fimm ára gamla dóttur sína með á tónleika hennar í L.A. í síðustu viku. 

Jessie J í stuði í Laugardalshöll.
Jessie J í stuði í Laugardalshöll. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Jessie J er líka búin að lýsa yfir aðdáun sinni á leikaranum og birti mynd á Instagram á laugardaginn af sýningu Tatum í London um leið og hún fór fögrum orðum um hana. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson