Fólk þarf gardínur og demanta

Vinkonurnar í Cyber í skrifstofufötum, tilbúnar fyrir tökur á myndbandi …
Vinkonurnar í Cyber í skrifstofufötum, tilbúnar fyrir tökur á myndbandi við lagið Hold. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það gengur mikið á í Ljósmyndaskólanum þegar blaðamann ber þar að garði morgunn einn í liðinni viku. Allir að hamast við að undirbúa tökur á tónlistarmyndbandi fyrir hiphop-sveitina Cyber. Leikstjóri myndbandsins, Kolfinna Nikulásdóttir, tekur á móti blaðamanni en hún vakti mikla athygli fyrir fáeinum árum sem ein liðskvenna hipphopp-sveitarinnar Reykjavíkurdætra líkt og Cyber-konur, þær Salka Valsdóttir, Jóhanna Rakel Jónasdóttir og Þura Stína Kristleifsdóttir.

Óljóst markmið

Cyber sendi á dögunum frá sér konseptplötuna Bizness sem fjallar um fyrirtæki sem selur gardínur og demanta og gerist platan öll á einum vinnudegi. Í stúdíói er einmitt verið að stilla upp leikmynd fyrir bankaútibú sem kemur við sögu á plötunni og Salka og Þura eru á leið í smink þegar blaðamaður nær tali af þeim.

Þær eru fyrst spurðar að því hvað sé eiginlega að gerast í myndbandinu. „Það er nóg að gerast. Það er verið að segja frá þremur konum sem eru aðeins of uppteknar, eru að vinna rosalega mikið en vita ekki endilega hvert markmiðið er eða hvert þetta stefnir. Það er aldrei neitt sérstaklega glaðlegt yfir þessu myndbandi,“ svarar Salka kímin. Litirnir dofni og myndbandið verði súrrealískara eftir því sem á líður.

Kolfinna leikstjóri spáir í spilin.
Kolfinna leikstjóri spáir í spilin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bið eftir hinu og þessu

Myndbandið er við lagið „Hold“ sem fjallar, eins og titillinn gefur til kynna, um bið. „Að bíða eftir því að eitthvað breytist eða gerist í þínum starfsferli eða hverju sem þú ert að bíða eftir,“ útskýrir Salka og Þura bætir við að þetta geti líka verið bið eftir hversdagslegum hlutum eins og að fá afgreiðslu í banka.

– Þið eruð ekki að bíða eftir þjónustufulltrúa?

„Líka en svo er það líka bara þessi hversdagslega bið eftir hinu og þessu sem maður skilur ekki endilega af hverju maður er að bíða eftir,“ segir Salka. „Það eru nokkrar raðir í þessu myndbandi og banki, við erum að smíða banka í þessu stúdíói og erum líka að búa til útópíu sem er í einhvers konar garðhúss-teboði sem er þá meira eins og himnaríki í þessum heimi. Að vera í núinu að njóta án þess að vera að bíða eftir einhverju.“

Cyber bregður sér líka inn í skjalatösku í myndbandinu sem verður án efa ansi skrautlegt. „Við megum eiginlega ekki segja of mikið,“ segir Þura.

Ekki rekið af ástríðu

– Þetta er konseptplata og sagan gerist á einum degi í fyrirtæki sem seldur gardínur og demanta, ekki satt?

„Jú, á skrifstofunni hjá Cyber Incorporated,“ svarar Þura og ber fram nafn fyrirtækisins með miklum bandarískum hreim.

– Hvers vegna urðu þessar vörur, gardínur og demantar, fyrir valinu?

„Það er bara það sem fólk þarf í líf sitt,“ svarar Þura stutt og laggott og Salka bætir við: „Þetta gerðist eiginlega bara óvart, það hefur bara verið gat í markaðnum þegar fyrirtækið var stofnað. Þetta er ekki fyrirtæki sem rekið er af ástríðu.“

– Hvaðan kom þessi hugmynd eða konsept?

„Það þróaðist bara yfir svolítinn tíma, við vinnum með fagurfræðilegt konsept á hverju ári sem við endurnýjum alltaf. Í fyrra vorum við að vinna með hrylling, gáfum þá út plötuna Horror,“ segir Salka og Þura segir að þeirri hugmynd hafi fylgt latex- og leðurheimur. „Sviðsfatnaðurinn okkar var alltaf þannig,“ segir hún. Salka segir að í kjölfarið hafi komið bissness-konsept en þá meira fagurfræðilegt, „að fara yfir í öðruvísi „powerplay“ sem er þá meira að vera í jakkafötum eða í svolítið karllægum heimi.“

Konur í bransanum

– Eru konur að taka völdin á þessari plötu, af körlunum?

„Já, svona meðal annars. Ég myndi segja að þessi plata væri blanda af því að vera um þessar persónur og þessa framvindu sem á sér stað á skrifstofunni,“ segir Salka og Þura bætir við að þær vinni allar á skrifstofunni og að yfirmaðurinn sé ekki til staðar en sonur hans, leikinn af rapparanum Króla, stýri fyrirtækinu í hans stað.

Salka segir plötuna líka að hluta til fjalla um þær Cyber-konur innan tónlistarbransans, reynslu þeirra af honum. Þær séu að segja frá reynslu sinni en þó ekki með línulegri frásögn.

„Undirtónarnir á plötunni eru líka mjög mikið okkar reynsla af þeim bisness sem við erum í. Hverju er maður að bíða eftir innan hans, hvað er maður að gera, hvenær er maður ánægður, hvenær líður manni illa? Ég hugsa stundum um hvernig væri að vera ekki í þessum bisness og finnst það setja mjög mikið tóninn fyrir vangavelturnar á þessari plötu,“ segir Salka og Þura tekur undir þetta.

– Hafið þið fundið fyrir miklu andstreymi?

„Auðvitað hefur maður gert það í gegnum tíðina, við byrjum í Reykjavíkurdætrum sem fengu gífurlega mikið mótlæti til að byrja með,“ svarar Salka og Þura segir dæturnar enn mæta miklu mótlæti. „Það var og er ekki enn eitthvað brjálað pláss fyrir konur í þessum bisness, þessum tónlistargeira,“ segir Þura. Salka kinkar kolli og segir þetta þó ekki það eina sem liggi þeim á hjarta. Tónlistarmenn þurfi almennt að leggja mikið undir og hægara sagt en gert að lifa af listinni.

Spaugilegri en Horror

Horror var dálítið drungaleg en Bizness er miklu léttari, það er kannski meiri húmor á henni, eða hvað? Eða virkar hún þannig á mann af því tónlistin er léttari?

„Kannski. Á Horror vorum við að vinna með svolítið persónuleg þemu og m.a.s. að vinna markvisst að því að gera þau drungalegri. Taka hluti sem eru í raun ekkert svo dramatískir eða drungalegir,“ svarar Salka og Þura tekur í sama streng. „Við vorum ekki að vinna með eins mikla sögu þá og karaktersköpun, leituðum meira inn á við,“ segir hún.

Salka segir að á Bizness sé ekki endilega verið að taka á léttari málum en hins vegar unnið úr þeim á ákveðnum ímynduðum stað, skrifstofu, sem skapi meiri spennu og keyrslu. Þura bætir við að persónusköpunin hafi skilað spaugilegri plötu en þeirri á undan og að á Bizness megi finna hreina frásögn frá upphafi til enda.

„Við höfum alltaf séð þessa skrifstofu fyrir okkur sem eitthvert ömurlegt, bandarískt fyrirtæki. Þú gætir aldrei selt demanta og gardínur á Íslandi,“ segir Salka kímin og Þura segist einmitt hafa séð mörg álíka undarleg fyrirtæki á dögunum þegar sveitin Cyber var stödd í Kanada. „Þú myndir aldrei sjá svona starfsemi á Íslandi,“ bendir hún á og ef slíkt fyrirtæki myndi skjóta upp kollinum hér á landi væri líklega eitthvað vafasamt á ferð þar innandyra.

Platan Bizness er aðeins aðgengileg í stafrænu formi og þá m.a. á Spotify. Hlusta má á plötuna með því að smella hér.

Hér má svo sjá myndband við lagið Pshycho sem er rúmlega ársgamalt:

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant