Stórleikarinn Robert De Niro og eiginkona hans, leikkonan Grace Hightower, hafa slitið sambandi sínu og búa ekki lengur saman. Heimildamaður People tengdur fjölskyldunni staðfesti þetta og segir að stundum gangi hlutirnir ekki upp.
De Niro sem er 75 ára kvæntist Higtower sem er 63 ára árið 1997 en þá höfðu þau verið saman í heilan áratug. Eiga þau saman tvítugan son og sex ára gamla dóttur.
Það er þó ekki öll von úti enn enda ekki í fyrsta skipti sem hjónin slíta sambandi sínu. De Niro sótti um skilnað árið 1999 en eftir forræðisdeilu náðu þau að vinna í sambandi sínu. Árið 2004 endurnýjuðu þau síðan heitin fyrir framan vini á borð við Martin Scorsese, Meryl Streep og Ben Stiller.