Breski leikarinn Daniel Radcliffe segist ekki ætla að fara á Harry Potter-leikritið sem sýnt er um þessar mundir í London. Radcliffe fór með hlutverk Harry Potters í kvikmyndunum um galdramanninn unga.
Leikritið ber nafnið Harry Potter and the Cursed Child og er byggt á samnefndri bók J.K. Rowling. Það fjallar um Potter og vini hans á fullorðinsárum sínum.
Harry Potter and the Cursed Child hefur verið í sýningu í um eitt og hálft ár og verður sýnt fram á sumarið 2019. Radcliffe hefur þó ekki enn látið verða af því að sjá sýninguna og ætlar ekki að gera það. Hann sagði í spjallþættinum Late Night With Seth Meyers að hann hafi oft verið spurður hvort hann ætli að fara og hann gefi vanalega leiðinleg svör eins og „örugglega ekki“.
Radcliffe sagði ástæðuna vera að ef hann færi á leikritið umvafinn Harry Potter-aðdáendum myndi hann draga athyglina frá verkinu og að sér. „Mér myndi líða eins og fólk væri að horfa á mig. Og það hljómar kannski hrokafullt og sjálfumglatt og fólki væri alveg sama, en mér finnst að ef ég væri umvafinn Harry Potter-aðdáendum, þá væri það svolítið skrítið,“ sagði Radcliffe.