Finnst hann þurfa að sanna kynhneigð sína

Shawn Mendes finnur fyrir umtalinu.
Shawn Mendes finnur fyrir umtalinu. AFP

Tónlistarmanninum Shawn Mendes líður eins og hann þurfi að láta sjá sig með konum til þess að vera ekki sagður samkynhneigður. Í viðtali við Rolling Stone segir hinn tvítugi tónlistarmaður að athyglin sem einkalíf hans fær hafi áhrif á sig. „Ég vildi að ég gæti sagt að það skipti mig ekki máli, en það er ekki satt.“ 

Segist hann taka það nærri sér þegar hann sér kannski einhvern ókunnugan skrifa athugasemd um að hann sé samkynhneigður eftir að hann krosslagði fætur sína í viðtali. 

„Mér finnst eins og ég þurfi að láta sjá mig með einhverjum, eins og stelpu, á meðal almennings til þess að sanna það að ég er ekki samkynhneigður,“ segir Mendes. 

„Fyrir það fyrsta þá er ég ekki samkynhneigður. Í öðru lagi, það ætti ekki að skipta máli ef ég er það eða ekki.“

Mendes mætti með Hailey Baldwin á Met Gala í vor og mánuði seinna var fyrirsætan byrjuð með Justin Bieber. Reyndu þau að að halda því fram að þau væru bara vinir en Mendes viðurkennir í viðtalinu að þau hafi verið meira en það. Hann vill þó ekki skilgreina samband þeirra sem ástarsamband. 

Hailey Baldwin og Shawn Mendes voru saman í vor.
Hailey Baldwin og Shawn Mendes voru saman í vor. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant