Leikstjórinn Quentin Tarantino og unnusta hans, ísraelska söngkonan Daniella Pick, gengu í hjónband í gær, miðvikudaginn 28. nóvember. People greinir frá að athöfnin hafi verið smá í sniðum og farið fram í Los Angeles.
Tarantino kynntist Pick árið 2009 þegar hann var að kynna mynd sína Inglorious Basterds. Hjónin trúlofuðu sig í júní í fyrra eftir eins árs samband. Hjónin fögnuðu trúlofuninni í New York í september 2017 þar sem stjörnur á borð við Bruce Willis, Samuel L. Jackson og Uma Thurman fögnuðu með þeim.
Leikstjórinn sem er orðinn 55 ára hefur aldrei verið kvæntur áður og hefur áður útskýrt það með því að vinnan taki allan hans tíma.
View this post on InstagramA post shared by Marie Claire Russia (@marieclairerussia) on Nov 28, 2018 at 10:49pm PST