Leikkonan Meghan Fox viðurkenndi það loks í sjónvarpsþætti Andy Cohen að hafa átt í ástarsambandi við leikarann Shia LaBeouf við tökur á Transformers. Leikarinn hafði áður gefið það í skyn að samband þeirra hefði verið meira en bara venjulegt vinnusamband.
Sagðist Fox í þættinum geta staðfest að sambandið hefði verið rómantískt. Fox og LaBeouf léku saman í myndunum árið 2007 og árið 2009 en árið 2009 var Fox rekin eftir neikvæð ummæli um leikstjórann Michael Bay.
„Ég elska hann, ég hef aldrei verið mjög þögul um það, ég elska hann,“ sagði Fox um meðleikara sinn. Hún hafði þó áður reynt að halda því fram að samband þeirra hefði bara verið faglegt.