Chopra og Jonas gift

Nick Jonas og Priyanka Chopra.
Nick Jonas og Priyanka Chopra. AFP

Bollywood-leikkonan Priyanka Chopra og bandaríski söngvarinn Nick Jonas gengu í hjónaband um helgina í Umaid Bhawan höllinni í Jodhpur á Indlandi. Fjölmargir gestir eru viðstaddir þar á meðal bróðir brúðgumans, Jo Jonas og unnusta hans, breska leikkonan Sophie Turner. 

Brúðkaupið er ákaflega íburðarmikið og gengur undir nafninu „brúðkaup ársins“ á Indlandi. Í morgun var sjálf athöfnin að hindúasið.

 Chopra, sem er 36 ára, skrifar á Instagram að eitt það dýrmætasta sem samband hennar og eiginmannsins hafi gefið er sameining fjölskyldna sem elska og virða hefðir og trúarbrögð hvor annarrar. 

Fjölmargir úr hópi fræga fólksins í heiminum var í veislunni en fatnaður brúðhjónanna var hannaður af Ralph Lauren. 

Chopra var kjörin Ungfrú heimur árið 2000 og hún er ein þekktasta leikkona Indlands. Hún hefur einnig leikið í bæði kvikmyndum og þáttaröðum í Bandaríkjunum.

AFP
AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson