Opnar sig eftir sambandsslit ársins

Pete Davidson.
Pete Davidson. AFP

Grínistinn Pete Davidson hefur fengið að finna fyrir því síðustu mánuði en Davidson og söngkonan Ariana Grande slitu stuttri trúlofun sinni í haust. Í gær opnaði sig um líðan sína undafarna mánuði, segist hann hafa verið lagður í neteinelti og glímt við sjálfsvígshugsanir. 

Davidson segir eineltið hafa hafist fyrir níu mánuðum, um það leyti sem hann og Grande voru að byrja saman. Á hann erfitt með að skilja hvernig allur heimurinn, eins og hann orðar það, talar illa um einn mann.

„Sama hversu mikið netið eða einhver annar leggur á sig til að reyna að láta mig fyrirfara mér. Ég mun ekki gera það. Ég er reiður yfir því að ég þurfi að segja það,“ segir Davidson meðal annars í skilaboðum á Instagram.  

Pete Davidson og Ariana Grande.
Pete Davidson og Ariana Grande. AFP

Grínistinn segist áður hafa opnað sig um geðsjúkdóm sem hann glímir við og sjálfsvígshugsanir til þess að opna umræðuna og hjálpa fólki í sömu stöðu og hann hefur verið í. 

View this post on Instagram

💙

A post shared by Pete Davidson (@petedavidson) on Dec 3, 2018 at 9:30am PST

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant