Georg Bjarnfreðarson á stóran stað í hjarta Jóns Gnarr sem leikur Georg og bjó hann til. Georg er aðalstjarnan í nýrri auglýsingaherferð VR.
Jón játar á Facebook-síðu sinni að hann elski að vera Georg.
„Hló svo mikið a[ð] þessu en svo þegar ég mundi hið fornkveðna; Heimskur hlær að sjálfs síns fyndni, þá hætti ég því strax. En mikið ofboðslega er gaman að vera Georg,“ segir hann.